það er miðvikudagur

og mér og mínum líður afskaplega vel í þessari borg festívals og gamans. sem betur fer er festívalið á undanhaldi, viðeigandi ruslabingar hverfa smátt og smátt og nú rekumst við Gabríela á þriflega bæjarstarfsmenn með sópa í morgunsárinu, ekki hálfölvaða veislugesti. nú streyma stúdentar hingað og partíglaða liðið heldur til síns heima. hjúkket bara. ég [...]

dagsformið

er alveg hreint stórkostlegt! hr ólafsson stakk upp á því í morgunsárið að við myndum príla upp á salisbury crags og arthur’s seat, sem saman mynda svona eins og eina esju. eftir sirkabát 20mín labb niður í holyrood vorum við allt í einu komin í sannkallaða náttúruperlu… og eins og asnar ákváðum við að fara [...]

brrr

var að fylgja gabríelu í skólann, í næstum hávaðaroki og fjórtán gráðum. dúllan var þreytt, fór aðeins of seint að sofa í gærkvöldi (21) og er stefnan tekin á 19 í kvöld, eftir mat, bað og lestur. pínku morgunstress í henni líka? líkti hafragrautnum hans davíðs við gúmmígraut pabba síns, og við það brosti hún. [...]

mér hefur verið bent á smá mistök í farsímanúmerinu mínu sem ég póstaði hér um daginn, síminn er sem sé 0044 7847376334. þá er það leiðrétt og ég get farið áhyggjulaus að sofa :). yfir og út.

rysjótt tíð, eins og gengur…

já, stemmingin er akkúrat þannig. ennþá dálítill rússíbani svona innvortis, tilfinningalega þá auðvitað. svolítill söknuður og löngun í fjarlæga (og örugga) hluti en þannig á þetta líklega að vera. það væri bara eitthvað óeðlilegt ef allt væri bara blár himinn og bleik ský? ég held að aðgerðarleysið sé eilítið að stríða viðkvæmu geðinu, en bráðum [...]

eitt enn, nýjar myndir á space-inu…

heilaryð og fleira

áttum yndislegan gærdag – því þá var “Meet the Teacher Day” í Sciennes. ákaflega gagnlegur fundur þar sem ég fékk að vaða út um allan skóla og skoða og gramsa, og síðast en ekki síst, ræða aðeins við Miss Kelly um afkvæmið. hún var afskaplega ánægð með hana, og kættist ákaflega þegar ég sagði henni [...]

bleh… þetta er þannig dagur! fór í langan göngutúr með línu um Bruntsfield, sem er ákaflega fagurt og vel stætt hverfi hér í bæ. þar er aragrúi af litlum fallegum verslunum sem auðveldlega má tapa sér í. pínkulitlar dótabúðir, krúttlegar búsáhaldabúðir, charity shops og hverfisverslanir. fínir barir og góðir restaurantar. keypti bara kassa með litlum [...]

þriðjudagur til þrautar?

hvurslags vitleysa er það? þetta var sem sé þrautalaus dagur því G gaf honum 9,0 í einkunn. missti augað af bekkjarsystrunum í morgunfrímínútunum og þar með fauk tían. lífið er því enn tiltölulega átakalítið, gönguharðsperrurnar horfnar og daglegar gönguferðir nýttar til góðra samskipta hjá okkur mæðgum. umræðuefni heimferðarinnar var m.a. launamisrétti, hlutverk kvenna hér fyrr [...]

líðandi stund

þá er gabríela komin heim eftir viðburðarríkan skóladag, ferð á starbucks og royal museum of scotland. allir hálfþreyttir eitthvað enda þurftum við að líða ágætis sólbakstur og óþolandi mannmergð í þessari núverandi festivalborg. en G gekk sem sé afskaplega vel í Sciennes (ekki borið fram sem “síennes” heldur “tjinns”, lærði það í dag). var eilítið [...]