ég hef glatað hæfileikum mínum til þess að fást við mjólkurfernur. síðustu þrjú skipti sem ég hef lagt til atlögu við fyrirbærið hef ég tapað, með tilheyrandi sulli og veseni. tvisvar náði fernan að koma mér að óvörum og sulla úr sér inní ísskáp, en núna síðast hellti hún eitthvað undarlega úr sér svo allt fór niðrá gólf en ekki í seríósdiskinn minn eins og upphaflega hafði verið áætlað. ljóst er að hér eru góð ráð dýr, og nauðsynlegt að snúa vörn í sókn hið snarasta, áður en illa fer.
Filed under: Uncategorized