í fréttum var þetta helst…

ungfrúin verður ekki aðeins netlaus í viku, heldur hálfan mánuð (max þó)! nú er eins gott að draga fram prjónana og hefja daglegan húslestur. eða hanga á bókasafninu allan daginn, sem ég geri líklega. það er líka nóg að gera, er með fyrirlestur í næstu viku og svo er ekki seinna vænna að fara að [...]

“vegna tæknilegra örðugleika…”

svona hefjast flestar mínar martraðir, enda hátæknivædd í huganum á póstmódernískan hátt. þið þekkið þetta… netlaus er ég allslaus, allslaus er ég ekkert. en núna er ég sem sagt heimanetlaus, á milli netþjónusta og verð því ekki tengd nema í gegnum háskólann næstu vikuna eða svo. ekkert skype elskurnar! engir kossar á ljósleiðurum eða knús [...]

bráðum mið vika

svo það er dagljóst að tíminn líður og lýtur þannig reglum tvígildislögmálsins og formlegrar rökfræði. eða þannig…
nóg að gera í skólanum, er ákaflega skotin í einum fyrirlesara mínum, hinum sextuga david carr sem er svo gáfaður á menn og málefni að hann ljómar eins og þúsund vatta ljósastaur þegar hann dillar sér fyrir framan stúdentahópinn. [...]

íslandsrómantíkin

vék fyrir skotlandsást í dag þegar ég geystist um ægifagrar sveitirnar með kolbrúnu og afkvæmum. förinni var heitið til sterling, ekki þó í safarí enda veðrið okkur óhagstætt, heldur bara í smá innlit. sterlíng reyndist bara hinn fallegasti bær í viðkynningu, ég fann þarna skemmtilega bókabúð og keypti mér peysu á 12 pund, þó ekki [...]

ég er að spá…

í að opna psychic hotline hér í bæ því á mig virðist vera að færast nokkurs konar spákonuhamur, ef marka má nýdreymda atburði sem hafa svo ræst í hverdagsleikanum. mig dreymdi nefnilega um daginn að pabbi hefði boðið mér í bíltúr, nema hvað, bíllinn var svo stór að ég komst varla upp í hann. ég [...]

þögul sem gröfin

það gerist stundum að manni langar til að finna sér lítið, loðið, hljóðeinangrað og dimmt afdrep í annasamri veröld og akkúrat þannig líður mér núna. veit ekki alveg hvað veldur. það er þó líklegt að ég sé farin að finna fyrir einhvers konar mastersnámskvíða, því mér er að verða ljóst að ég verð með hausinn á [...]

afmælisstelpa!

ég og gabríela ósk sendum risavaxnar afmæliskveðjur á kleppsveginn, því hún anna maría á afmæli í dag! við vonum að dagurinn verði ákaflega skemmtilegur og að árafjöldinn vefjist ekki fyrir þér ljúfan. kossar og knús úr edinborginni.

ahh…

átti yndislegan gærdag í skoskri sveit, umvafin sólskini, dulúð og risatrjám. heimilisfólkið ákvað að yfirgefa borgina upp úr hádegi og tókum við strætó út í óvissuna til að skoða Rosslyn-kirkju, sem Dan Brown gerði svo fræga í Da Vinci Code. en vísast var hún þó fræg fyrir? ekki fundum við kaleikinn en margt annað fundum [...]

hjúkket

fór aftur til tannsa í morgun, með undirbúna ræðu í hausnum um að maður rífi nú ekki bara tennur úr fólki svona einntveirþrír. ákveðnissvipurinn á sínum stað og allt. en hitti þá bara indælis doktor sem var bara sammála mér og staðfesti að það þyrfti ekki að taka jaxlinn, heldur rótarfylla. svo var tönnin hreinsuð [...]

elsku Birna…

lína fór á kynningarfundinn sinn áðan í skólanum, dáldið stressuð þessi elska, fékk sér te fyrir brottförina en það náði þó ekki að skola úr henni kvíðann. yndisleg engu að síður, í svörtu pilsi og fjólublárri peysu. maskari og gloss líka. davíð skaust á bókasafnið eftir heimkomuna úr kastalanum, dáldið krumpaður. hvíldist líklega lítið í sveitarómantíkinni. þurfti [...]