grasker er orð dagsins – enda við hæfi á halloween. fékk grasker í kvöldmatinn í gærkvöldi og graskerssúpu í hádeginu, horfi alls staðar á grasker og fann lykt af draugum í morgunsárinu (kannski þó rotnandi plöntur). þetta rímar allt við daginn. dáldið skemmtileg stemming, og þó? nenni ekki að taka þátt. fannst þetta alltof amerískt [...]

ég vil benda lesendum mínum á að í dag er winter daylight savings sem þýðir að klukkan er færð til baka um klukkustund. sem þýðir þá líka að það er sami tími núna á íslandinu og skotlandinu, sem er 8:39 þegar þetta er skrifað – á sunnudegi. sem þýðir að ég ætla að hunskast aftur [...]

frægðin á föstudegi

 

gabríelan mín er búin að vera í stórskemmtilegum gír undanfarna daga, og hálfundarlegum verð ég að segja. hún verður nú seint talin til vandræða – en á mánudaginn tók hún upp á því að verða fyrirmyndarbarnið, eða eins og hún orðaði það í morgun þegar móðirin undraðist uppátækið, “ég hef alltaf verið 99% þæg, núna [...]

hellú darlings

góðar fréttir dagsins eru þær að víðir á afmæli í dag! sjáið bara þetta krúttlega fés. ekki hrukka til staðar, fjallmyndarlegur og allt það en mestu máli skiptir að innvolsið er sannarlega til fyrirmyndar. dóttirin sendir eldheitar ástarkveðjur, okkur hlakkar ekkert smá til að hitta ykkur eftir… hvað… þrjár vikur?
ungfrúin heilsar, örþreytt eftir æsispennandi jatsí næturinnar. [...]

laddi í laddalandi

def. ‘laddi’: [n.] maður/kona af lágstétt, í strigaskóm, sléttað, ofstrípað hár, bjór í poka, líkamsgötun, gervibrúnka, tattú, ber nafli, slæmur munnsöfnuður.
ekki misskilja mig, það geta margir staðfest að ég er tiltölulega laus við hverskyns fordóma, en þegar ég fékk mér göngutúr með michael í gær um dalkeith (gamall kolanámubær í nágrenni embru) þá gaus upp [...]

Kæru landsmenn, til sjávar og sveita

ungfrúin er löt í dag, reyni þó að lesa með öðru auganu, enda á fjarvist engilsins að vera vel til þess fallin að koma á blað svona eins og einum fyrirlestri, nú eða bara til að lesa. en það er eirðaleysi í mallakútnum, kannski er ástæðan sú að ég hef ekkert farið út í dag, [...]

ah!

var að horfa á trinny&susannah og önnur þeirra sagði orðrétt: “when you find something that suits you [peysa, í þessu tilfelli], don’t be afraid to buy it in as many colours as you like.” nú geta allir hætt að hlæja að mér þótt ég eigi uppáhaldsMEXXpeysuna mína í þremur litum. einn-tveir-og…

einn manhattan takk…

það rímar við lundina núna sem virðist vera blessunarlega laus við kvilla tengdum raka og fúkkalykt. það virðist sem maður sé rólega að stilla sig inn á plássleysi og ná(!)búskap. skellti mér í Laddaborgina Glasgó með ungviðinu í morgun og fylgdi henni á flugvöllinn þar sem hún var merkt rækilega í bak og fyrir: Unattended [...]

fyrirgefðu, hvar get ég keypt sólaráburð?

núna er ég formlega orðin launakona í skotlandinu, var að enda við að sitja innilokuð í aggalitlu hljóðveri, eiginlega svona hljóðbúr með tölvu inní og míkrafón. Og þarna sat ég í rúma tvo tíma og þuldi einstaklega skemmtilegar setningar (286 stk) eins og: we’re staying at the hilton hotel = við gistum á hótel holti, sorry, [...]

jei!

komin í alvöru netsamband við umheiminn, þökk sé vini mínum, BT. það kom verktaki áðan og tók út skemmdirnar, það virðist sem viðgerðir muni ekki taka neinn óratíma, en málið er að við þurfum að bíða í 2 vikur þangað til eitthvað fer að gerast! alveg hreint dásamlegt. og svo þarf kannski að kalla til [...]