muniði eftir patrick duffy? var að lesa viðtal við hann í helló, þeim gæðaslúðurpappír, þar sem hann lýsti því hvernig hann ákvað að brjótast út úr hlutverki góða gæjans í dallas og draga fram myrku hliðarnar á persónunni. mig minnir að það hafi gerst eftir að pamela vaknaði eftir árslangan draum og fann bobby í [...]

innrimónólóg

lexía dagsins: horfðu til himins áður en þú ferð út
 
driiiing. ansans. kominn dagur og klukkan bara sex. hefði átt að hunskast til að vinna próförkina í gær í stað þess að þurfa að rífa mig upp í morgunsárinu. enjæja. mikið eru þessir þættir þarna leiðinlegur. hvernig ætli dagurinn verði? mig langar ekki í hafragraut en [...]

í veðri er þetta helzt

bleikt ský, sól í köflum, hlýjir vindar, 11 stig, sem sagt, pilsaveður. kemur á óvart, þrátt fyrir fallegan gærdag líka. en jólin skutu einmitt rótum í hjartanu í gær þegar ég og mínir kíktum á jólaþorpið í princes street gardens og ég fann ilminn af alvöru glöggi og piparkökum. yndislegt bara! ætlaði að finna mér [...]

fagnaðarerindið

ég sá þetta á síðunni hennar Kolbrúnar og vil endilega taka þátt í því að dreifa þessu sannleikskorni um víða veröld…
“það sem við óttumst mest er ekki að við séum vanhæf. það sem við óttumst mest er að við erum ótrúlega áhrifarík. það er birta okkar, ekki myrkrið, sem hræðir okkur mest.” [nelson mandela]
og á [...]

ég viðurkenni að stundum hleypur kaupgleðin dálítið með mig í gönur. ég var að ganga frá þvotti og rek þá augun í hvíta skyrtu sem ég varð einhverra hluta vegna að eignast fyrir svolitlu síðan, en hafði aldrei farið í. fyrr en varði var ég búin að rífa mig úr peysunni og komin í skyrtuna. og [...]

maður lifandi, ákvað að koma við einhvers staðar og fá mér kaffi á leiðinni á bókasafnið, og ég sit hérna næst manni sem er 99% tvífari hans toms! ekki að grínast. reyndar aðeins meira röff týpa, með gulllokk í eyra, en samt eru þeir eins? en kaffið bragðast afskaplega vel í kuldanum. var að svara [...]

náttúruleg ungfrú

 
ég bara dýrka svona “heildrænar lausnir”, og þá á ég ekki við hugbúnað eða tryggingarpakka. ég er nefnilega kolfallin fyrir kremum frá því ágæta fyrirtæki balance me (nema hvað) sem ég finn í hinni yndislegu bóhemíu á warrender park road hér í borg. um daginn keypti ég mér rose body balm og eftir kvöldbaðið ákvað [...]

hann á afmæli í dag…

sí, ungfrúin brosir í síðdeginu, ekki annað hægt því hann KRISTÓFER á 1. árs afmæli í dag! það er bara eins og það hafi gerst í gær að ég skaust í ofboði upp á fæðingardeild og leit krúsídúlluna fyrst augum? en ég vona að hann hafi átt frábæran dag, fengið matarkex í óhófi og fengið [...]

ah…

mikið afskaplega eigum við Gabríela góða fjölskyldu – Víðir, Dóra og Kamilla voru sem sé að fara áðan með áttalestinni eftir þriggja daga stórskemmtilegt ævintýri. á þessum stutta tíma náðum við að fara á princes street að versla, borða á suzie’s og mariachi, slafra í okkur súkkulaði á the chocolate soup (eða flestir…), drekka gingerbread [...]

ferðaðist um heiminn á örskotsstund og byrjaði í naflanum… íslandi þá (þið ættuð nú að vera farin að þekkja brennheita þjóðernisást mína?). leit á kastljós og þar heyrði ég þessa setningu:
“nú er framundan aðalmeðferð í baugsmálinu.”
ókei. þar slokknaði á ástinni því mikið afskaplega er ég lifandi fegin að losna við þetta rugl og yfirvofandi leiðindi. [...]