elsku lína…

þú yndisfríða vinkona, ég tileinka þér þessa ámátlegu færslu. íslandið er æði. mátulega ókalt og bó er kominn með platínuplötu. kann engan að furða þar sem vinir okkar hjá alkan keypti risavaxið upplag, pakkaði í álpappír og sendi björgvinsalkanelskandi hafnfirðingum. ég leit að sjálfsögðu á þetta sem örgustu mútur og hótaði heimilisfólkinu að henda plötunni [...]

elsku vinir, til sjávar og sveita…
þið eruð öll yndisleg. afskaplega vel gefin líka! ég vil að þið verðið öll rík og óstjórnlega hamingjusöm á nýja árinu. ég vil að þið verðið dugleg að skoða heiminn og í guðanna bænum borðið meira grænmeti? kjósið rétt og ekki láta eiginhagsmuni ráða. hugsið um heildina. RECYCLE. ekki henda [...]

*geisp*

er í típískum desemberfasa, búin að arka búðirnar út og suður og komin með úttaugunarflensuna sem er svo áberandi í desember. ástandið varð svo slæmt í morgun að gabríelan hélt í örstund að ég ætlaði að lemja hana í hausinn með grautardisknum, sem var auðvitað helber misskilningur… afskaplega fyndið allt saman.
en það er yndislegt að [...]

úhú… ég sé doppótta kettlinga…

í alvöru, tók eftir því að ritgerðin mín hætti snarlega að fjalla um political education og breyttist í sögu af doppóttum kettlingi sem var að reyna að leysa öll heimsins vandamál með bleikum pensli. og hverju er um að kenna? jú, sparslinu sem sandararnir hérna eru að troða í öll götin á stofugólfinu. lyktin er [...]

stóð í laaaaaaaaaangri biðröð í dag á pósthúsinu, þurfti að senda frá mér óteljandi jólakveðjur útí hinn stóra heim, og nokkra pakka til útvaldra. sem betur fer rann röðin fram hjá risavöxnum kortarekka og ég uppgötvaði mér til skemmtunar að skotarnir eiga kort fyrir hin líklegustu og ólíklegustu tilefni. fyrir utan hin hefðbundnu afmæliskort mátti [...]

 undursamlegar og stórmerkilegar fregnir af landinu á breiddargráðu 82°N, eða um 834 km frá Norðurpólnum, það SNJÓAÐI! ég og lína létum eins og sannir miðjarðarhafsbúar og þustum að eldhúsglugganum til að virða fyrir okkur herlegheitin.
annars var þetta vondur morgun, vaknaði í stresskasti og það var einhvern veginn allt á hvolfi inni í mér. náði þó áttum [...]

skyr.co.uk

 skotarnir eru farnir að framleiða skyr að íslenskri fyrirmynd! það kætir mig óumsegjanlega skal ég segja ykkur. hingað kom áðan dr. óli, sem ég mun kalla héðan í frá skyr-óla, og færði mér góssið, enda varan ekki komin út á almennan markað. það á hinsvegar að gerast í upphafi nýs árs, ef allt gengur að [...]

iss piss og pelamál

verður örugglega ritað á minn legstein þegar sá dagur rennur upp, nýji vatnsGEYMIRINN minn, sem tekur ekki minna en 1,3L, er að gera rass minn stinnan af eilífum salernisferðum. mér reiknaðist svo í gærkvöldi að ég hefði drukkið sirkabát 5L þann daginn, og er því hægt og sígandi að breytast í baðkar eða fiskabúr. en vatnið [...]

bara eitt í blálokin, var á þeytingi í dag og datt í hug að tékka á þessari síðu fyrir hlaupara, og mæla vegalengdina sem ég gekk í dag. og viti menn, ungfrúin arkaði heila 9,66 km! geri aðrir betur, segi ég nú bara. ætli meðaldagurinn spanni þá ekki sirkabát 6 km?

gleymdi að segja ykkur að bt-beljan bar loksins, þ.e. við erum loksins orðin netvædd aftur eftir 19 daga svelti og svo kúkaði einhver undarleg mannvera á stigaganginn okkar í morgun. ef allir dagar væru svona spennandi!