flókin fræði unglingsáranna

það er hægt og sígandi að renna upp fyrir mér sú blákalda staðreynd að dóttir mín er að verða tíu ára. ég er við það að fá annað áfall (það fyrsta kom þegar gabríela varð sjö ára og komst af ‘krúttlega’ aldrinum). eðli áfallsins núna er annars konar og auðvitað langtum flóknara. barnið mitt stendur [...]

dagurinn á afmælisbarn

og það er hin síunga móðir mín… við gabríela sendum henni eldheitar afmælis- og ástarkveðjur og óskum henni góðs dags!

bruni í brighton street!

aldeilis hasar á heimavelli, ég og lína skutumst eftir afmælisfrönskum og ís og komum heim í þetta ástand… hjartað tók á sprett og ekki minnkaði spennan þegar slökkviliðsmaður þurfti að sækja par af 4. hæð og ferja þau út um glugga og niður stiga. guðs mildi að enginn slasaðist…

áróra á afmæli í dag, áróra á afmæli í dag, áróra á afmæli í dag, áróra á afmæli í dag, tralallalalllallla, tralallalalllallla, tralallalalllallla, tralallalalllallla. áróra er fjögurra ára í dag, áróra er fjögurra ára í dag, áróra er fjögurra ára í dag, áróra er fjögurra ára í dag, tralallalalllallla, tralallalalllallla, tralallalalllalllala, tralallalalllallla.
árnaðaróskir, elsku vinkona…

[ég er alvarlega að íhuga að gerast hluthafi í google inc, enda með stærri viðskiptavinum. er ég þá sérstaklega að tala um google talk, ég mala nefnilega á gúgglískum línum kvölds og morgna og bjarga þannig andlegri heilsu minni og brothættu geði. allt fyrir þig, ljúfastur.]
laugardagur. dagsplanið felur í sér síðbúna sturtu og hádegisverð, ferð út [...]

föstudagur! bjartur dagur líka og loksins finnst mér ég aftur orðin mannleg (að hluta allavega) eftir að hafa orðið undir í stríðinu við frunsuvírusinn í vikunni. hef liðið vítiskvalir og vonleysi í nokkra daga og vorkennt sjálfri mér heilan helling. langaði helst til að grafa mig ofan í holu og líta ekki dagsins ljós fyrir [...]

barnshugurinn er alltaf áhugaverður, þetta blasti við mér í leitarvélinni í gær eftir að gabríela hafði verið að bisa eitthvað í tölvunni…
fimmtudagur? 22. febrúar? á ekki einhver tímavörpunartæki sem getur hraðspólað fram í júlí? töfrasprota? anda í flösku? mig vantar nákvæmlega sumar og sól, sérstaklega eftir gasreikningsáfallið sem við heimilisfólkið urðum fyrir í morgunsárinu. gaskompaníið [...]

mikið skelfilega er gaman að fylgjast með fréttum núna. kartöflumýs í bónus og britney orðin sköllótt? hvað næst? spyr ungfrúin með forvitnisglampa í augunum…

fann sálufélagann í grasmarkaði um helgina og heitir hann gunnlaugur, bjartur yfirlitum og með blá augu sem ríma fullkomlega við heiðan himinn og lygnt hafið. og svo mikið var dekrast með mig að ég býst auðvitað fastlega við því af sambýlingum mínum að þeir færi mér morgunverðinn í rúmið í fyrramálið? annars var skemmtilegt að [...]

sólong

ætla að stimpla mig tímabundið út úr hverdagsleikanum, ég veit að þið eigið öll eftir að sakna mín afskaplega en svona er lífið! verð niður í grasmarkaði með gullið blómstur í hjartanu. eigiði notalega helgi.