nýjasta listaverk dótturinnar hæfileikaríku…
fékk að kíkja inn í heim ríkidæmis og forréttinda í morgun þegar ég heimsótti hinn ákaflega tignarlega fettes college hér í borg í tengslum við EPA námsskeiðið sem ég sit í háskólanum (educational planning and administration). dagurinn byrjaði reyndar brösullega þar sem ég náði einhvern veginn að villast á leið minni í skólann, en ég hafði ætlað að grípa tækifærið og ganga rösklega þessa 5 km. þeir enduðu á að teygja sig í sirkabát sjö en ég náði þó í skólann í tíma, fótblaut og ísköld eftir snjóföl og slyddu. þið heyrðuð rétt, það snjóaði í höfuðborginni í nótt. í fettes var tekið á móti okkur með kostum og kynjum, endalaus kaffisamsæti og áhugaverð kynning á IP-áætlun skólans, en IP stendur fyrir international baccalaureate og er alþjóðleg námsskrá sem skólinn er að innleiða fyrir síðustu tvo bekkina (valfrjálst), 16-18 ára – IP er eingöngu fyrir þá alla gáfuðustu og hæfileikaríkustu. ég sat kennslustund í stærðfræði og fékk “skemmtilega” upprifjun á sektorum. við vorum þrjár í hópnum mínum og fengum tvo IP-nema til að leiða okkur í sannleikann um ágæti skólans. og ég verð að viðurkenna að ég kolféll fyrir stórkostlegu umhverfinu og gríðarlega metnaðarfullu starfi sem fer fram innan veggja skólans. þetta var eiginlega ólýsanlegt? svo var gaman að spjalla við nemendur á persónulegri nótum og fá smjörþefinn af því hvernig er að vera aristókrat. loksins skildi ég hugtakið “cultural capital” sem ég er búin að heyra svo oft um í vetur… eftir fund og kennslustund var okkur boðið í lunsj og aftur missti ég andlitið þegar ég sá úrvalið sem var í boði. endaði á því að fá mér salat og pínku pasta, og banana “custard” í desert, í silfurskál… eftir heimsókn hljóp ég svo af stað niður í bæ og eftir að hafa náð að villast aðeins aftur komst ég loks í miðborgina og einhverra hluta vegna lá leiðin inn í french connection. og maður lifandi, hefði getað gengið út með minnst fimm flíkur, en þó er varla hægt að segja að góssið hafi rímað vel við námsmannapyngjuna. en mikið var þessi ferð góð fyrir sálartetrið, greip með mér tvo kjóla í minni stærð og þegar ég kom í fataklefann mætti ég þessari afspyrnuhressu stelpu sem vildi endilega að ég mátaði þriðja kjólinn, og ég sló til, þótt hann félli illa að mínum einfalda smekk. en hún mændi mig út og vitimenn, kjóllinn var númer tíu… dásamlegt. ég endaði á því að kaupa annan af kjólunum sem ég valdi, í stærð tólf þá, og þarf ekki lengur að óttast það að finna ekkert til að vera í í brúðkaupahrynu ársins. tíu! tíííííu!!! heyrist þetta ekki örugglega út um heim allan? óraunhæft, en samt… tíu! eitt enn: mátaði í þeim alla skrítnasta búningsklefa sem ég hef séð. var eiginlega búningsherbergi, og allir voru að máta saman… ekkert prívasí, en ókei samt. skrítið…
gabríelan er að fara til íslands í fyrramálið og framundan er því ferð til glasgó. það verður vont að skilja við barnið í þessa 12 daga, en hún hefur gott af því. ég er nefnilega búin að ræna hana öllu menningarlegu kapítali síðustu vikur vegna vinnuálags og hún hefur því að mestu mátt bjarga sér sjálf… afleiðingin? jú, hún uppgötvaði myndina blue lagoon í dvd-möppunni sinni og er búin að horfa á hana sirkabát tólf sinnum. ég hef mátt kalla hana Em undanfarna daga í höfuðið á persónu brooke shields. algjörlega óréttlætanlegt. ég veit að pabbi hennar og dóra eiga eftir að næra andann hennar næstu daga, því ekki veitir af.
en best að vinna áfram, skil ykkur eftir í kvöldinu.
Filed under: Uncategorized

Vá – ótrúlega flott hjá henni! Ekkert smá líkt henni!
aha…. algjör engill :). og hlakkar ekkert smá til að hitta ykkur á morgun.
kossar,
sí
skemmitlegur þessi fítus með litinn á vörunum ; )
hæ pæjur
Flottar myndir upprennandi listamaður;)
Vá ertu ekkert að grína með brúðkaupin það verður nóg að gera hjá ykkur.
Allt fínt að frétta hér frá Akureyri, búið að vera ansi kalt reyndar en mikil sól, reyndar svo mikil að húsmóðirinn fékk áfall þegar hún sá allan skítinn sem sólin skein á . Þá var ekkert annað að gera en að kaupa málingu og mála eldhúsið enda nennir undirrituð ekki að byrja á því að fara að læra þar sem ég var að koma úr 4 vikna verknámi og ekkert þurft að læra nema smá.
Krakkarnir eru eldspræk , nú bíða þau spent eftir öskudeginum og æfa stíft bjarnastaða beljurnar og krummavísur. Það eina sem ég hef áhyggjur af er að búningarnir passi enþá;)
Bjössi mágur er orðin útgerðarmaður ásamt því að skipta um vinnum heldur þú að hann sé ekki að verða verslunarstjóri hjá rönning hér á AK
Benni ræfillinn er með eyrnabólgur þessa daganna og kominn á pensilín á nýjan leik. Ég er ekki frá því að systir mín ´se farin að grána í vöngum af þessum veiknindum og ekki nóg með það heldur er mamma að tapa mikilvægum fegrunarsvefni þar sem hún passar gaurinn frá 8 – 12 svo Thelma geti farið í vinnu
En nóg röfl héðan sjáumst hressar um páskanna
Kveðja Begga og co