hvöss sunnanátt með snjókomu, slyddu og síðar rigningu? svona ætlar móðurjörðin að taka á móti okkur mæðgum á þriðjudag. af því tilefni mun ég taka mér ægilangt skrifhlé hér, eða, mér finnst það líklegt að ég hafi öðrum hnöppum að hneppa en að mala hér um íslandsævintýrin. ég hef í nógu að stússast á morgun, [...]

skammastín tóní!

það er greinilegt að tóní blair ætlar að yfirgefa bresk stjórnmál með stæl, og hvernig yfirgefur maður forsætisráðherrastól með hvelli? jú, maður þrýstir á samþykki þings (og fær!) um smíði nýrra kjarnorkukafbáta… það er svo áhugaverð staðreynd að fyrirtækin tvö sem eiga að sjá um smíði þessa rááááááááááándýra rusls eru bæði amerísk og, haldið ykkur fast, í [...]

sigríðurrrr!

 
ef það væru ekki hundrað+ manns búnir að skoða síðustu færslu þá myndi ég eyða henni snarlega. það fer mér ekki að væla svona, og heimþrá er bara hugarástand þá og þá stundina, varir skammt. lína benti mér t.d. á þá merkilegu staðreynd að reykvísk kaffihús eru ekkert sérstök, hvað þá barsenan. og mikið er [...]

 
heilinn er undarlegt fyrirbæri. stundum held ég að tilvist hans sé bara goðsaga? rétt eins og þegar lína spurði mig nýverið hvar ég héldi að sálin byggi – ég svaraði að hún gæti allt eins búið í vinstri rasskinninni á mér, ég bara vissi það ekki. vorum þá að þræta um guð, sem er góður, [...]

affection is sometimes like a shy flower, it takes time to blossom…
tilvitnun dagsins. fór með afkvæmið á becoming jane sem fjallar, svona lauslega altént, um líf jane austen. endalaus sæla, þessi 19. öld. ég er svo mikill sökker fyrir rómatíkinni að ég fæ alltaf tár í augun þegar kvenhetjan uppgötvar brestina í fari skúrksins [...]

í morgunsárinu…

gabríela: mamma, fæðist maður með fegurðarbletti?
sí: já, oftast
gabríela: þekkirðu einhvern með fegurðarblett?
sí: nei, ekki svo ég muni eftir
gabríela: þú ættir að hafa fegurðarblett
sí: nú?
gabríela: þú ert svo falleg, mamma…
maður á allavega einn aðdáanda í þessari veröld?

langiskuggi og morgunblómstrið

 
vaknaði – bókstaflega – sólarmegin í lífinu. brosti hringinn við fyrsta hanagal, sturtaði mig kortéri á undan áætlun og setti upp kinnaglossið. fylgdi unganum í skólann og ákvað svo að baða mig í birtunni á arthur’s seat og queens drive áður en ég arkaði áleiðis af stað í skólann. og það gerði ég, alsæl auðvitað. [...]

 
er að lesa grein um neó-marxíska stjórnunarhætti… par excellence bara. heilar fimmtíu síður fyrir morgundaginn, alltaf gott að vera tímanlega í lestrinum? dagurinn felur annars fátt merkilegt í sér annars, þarf að skrifa með G ræðu um regnskógatengt málefni sem hún þarf að presentera fyrir bekknum í næstu viku (má ekki taka meiri tíma en [...]

allt er breytingum háð, og það er sannarlega vor í lofti hér í skotlandinu þótt það sé eflaust raunhæf hætta á kulda og tilheyrandi. þar sem ég hljóp í gær mátti sjá heilu breiðurnar af útsprungnum sumarblómum, gulum, bláum og fjólubláum, bara dásemd. og fleira breytist, nú er ég alveg við það að ljúka tímasókn [...]