jæja, enginn tími í orðavaðal – er farin til berlínar með félaga línu, ætlum að spæna upp götur og blanda geði við góða. kem aftur á föstudaginn. þangað til…
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
jæja, enginn tími í orðavaðal – er farin til berlínar með félaga línu, ætlum að spæna upp götur og blanda geði við góða. kem aftur á föstudaginn. þangað til…
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
afmælisdagur nálgast… fékk mig til að hugsa um aldur minn í menningarlegu samhengi hlutanna og ég held að ég geti, enn um sinn, verið róleg. ég meina, hef ekki enn farið á námsskeið í kransakökugerð, né kann ég að skrappa eða sauma út? svo á ég bleika converse-skó, gleymum því ekki. það eiga annars allir afmæli í [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
elsku lína, hér eru kannski framtíðarfélagar þínir, þessir andevrópusambandssinnuðu….?
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
nú eru góð ráð (rán)dýr. nú fer að líða að því að ég og dó hlaupum í the bupa great edinburgh marathon, sem er svona charity hlaup og við svo kaldrifjuð að hlaupa “bara” með eigin hagsmuni í huga, og þorsta eftir verðlaunapening og dynjandi lófaklappi ástvina við ráslínu og mark. en svo er berlín [...]
Filed under: Uncategorized | 5 Comments »
í tilefni af neðangreindri miðbæjarumræðu og góðlátlegum þrætum okkar línusar um fortíð og nútíð í því samhengi, benti umrædd kona mér á eftirfarandi mynd í morgunsárinu… náttúrulega bara skemmtilegt :).
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
það er þannig með mig að þegar ég er síst líkleg til afreka þá geri ég eitthvað sem getur mögulega talist merkilegt, allavega á persónulegum mælikvarða. þannig var það í kvöld sem hófst með grænu gnægtarborði og ofursúpu að hætti húsbóndans. eftir kvöldverð lagðist yfir mig gríðarleg þreyta sem hótaði að leggja mig í rúmið, [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
kaus áðan í rjómablíðu og sól. skoppaðist svo á peysu og sumarkjól í samlokubúllu með samkjósendum mínum og svo var snætt í íðilgrænu grasi í prinsagarði, og berum tásum sleppt út úr heitum skóm. bæjarferðin endaði svo á því að ungfrúin fann loksins unglinginn í sér og keypti sér alvöru bleika converse-strigaskó (við illan leik [...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
hugurinn ráfaði frá fræðigreinum yfir í bloggheima og eftir krókaleiðum fann ég þennan pistil eftir frey einarsson þar sem hann orðar, á skemmtilegan hátt, nákvæmlega það sem mér finnst um enduruppbyggingu húsanna sem brunnu í miðbænum í síðustu viku. pistillinn góði hljóðar svo:
‘Bruni í geymslu hjá Borginni
Nú liggur ljóst fyrir að 10 þekkt Kjarvalsmálverk hafi [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
„Hún er loftfimleikakona en líka með mastersgráðu í að semja söngleikjatexta og er mjög flottur performer.“
las ég í blaði allra landsmanna í morgun. hvaða óspennandi lífshilla heldur manni eiginlega uppi? af hverju á ég mér ekki rólu einhvers staðar sem ég get sveiflað mér í þegar tækifærin gefast og löngunin kviknar og af hverju datt [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
dúfur eru dýrgripir drottins (öfugmæli dagsins). sama dúfan er búin að sitja á sillunni fyrir utan herbergisgluggann í allan dag og stara á vinnubrögðin, stundum með vandlætingarsvip. mér finnst að dúfur ættu að hafa eitthvað allt annað að gera en að angra þreyttar námsmeyjar. kannski fer hún ef ég sleiki útum svo hún sjái til?
þess má [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »