úff…. er ofdekruð og happí….. og ÁRINU eldri. veit ekki alveg hvernig skal skilgreina þessa árleysu sem hrjáir mig núna, er ég nýlega þrítug eða hátt á fertugsaldri? en svo mikið veit ég að þetta hefur verið besti afmælisdagurinn hingað til, og aðdragandinn allur – því ég er ekki eina maístjarnan. gunnlaugur átti afmæli 21. [...]

 
ef þið bara vissuð hvað mig langar til að skipta við þá kúabræður núna… er komin með hausverk og kvíðahnút og sé engan endi á verkefnum. þegar ég fæ botn í eitthvað eitt bætast við þúsund hlutir sem ég skil ekki/skil illa. fundur með pat mclaughlin á morgun og veröldin er að farast, sirkabát. hugurinn [...]

muuuu!

það er til svo margt skemmtilegt á íslandi. var að fletta blaðinu og sá að það er komið hátæknifjós í eyjafjarðarsveit sem rúmar 139 beljur af öllum stærðum og gerðum. og í fjósinu starfa víst fimm róbótar, tveir mjólka (geta sinnt allt að 70 kúm hvor), tveir moka flórinn og einn gefur. á meðan eru bændurnir/bræðurnir [...]

hef aðeins verið að stúdera viðbrögð fólks við úrslitum kosninganna og það virðist vera alhliða álit kvenna/manna í kringum mig að íslendingar hafi verið að kjósa yfir sig eld&brennistein og eilífa vist í forgarði vítis. íhaldið er djöfullegt, heyrði ég jafnvel fleygt um daginn og setti mig hálfhljóða. það má svo sem vel vera, og tel [...]

góðir íslendingar

…til sjávar og sveita. á láði og legi. sjómenn, hetjur hafsins. bóndi er bústólpi. er forsetinn frískur? í dag er kosningadagur og þá hendast auðvitað allir í sparifötin og setja upp hatta og troða holtasóley í hnappagötin. hlusta á lóuna og dirrindí og kveða með hallgrími í höfðinu meðan gengið er örspölinn að kosningastað. sannfæra svo [...]

merkilegur ári. prófaði í gamni að taka vefkönnun bifrastarfólks á flokkslínum og skoraði nákvæmlega núll í þeim flokki sem ég kaus hér utankjörstaðar. skoraði svo grimmt í flokki sem mér finnst bara núll-og-nix? þar hefur stóriðjan fellt mig, nú eða afstaðan til áfengisverslunar í kjörbúðum landsins – þar sveiflast ég nefnilega milli frjálshyggju og íhalds. [...]

 
allt í einu varð tilveran hæfilega viðburðarrík og skemmtileg. langt liðið á maí (eða þannig) og heimilisfólkið á farandsfæti von bráðar, allir nema ég. það var skyndilega ákveðið að gabríelan færi heim með lí og dó og rófutófu eftir viku og eyddi nokkrum dýrmætum dögum í hveragerðinu. og svo er betrihelmingurinn að koma bráðum. og [...]

sama gamla rútínan tekin við. ritgerðarkvíði farinn að gera vart við sig, líka smá harðsperrur eftir átök gærdagsins [er þó þegar búin að bóka mig í annað hlaup 26. júní, og nú næ ég markmiðinu langþráða!]. G er bara róleg og les núna tuttugu ára gamalt andrésblað. annars snýst lífið núna um undirbúning og rabarbara. [...]

 
töfraorð dagsins: ungfrúin hljóp 10k í morgunsól og vorvindi. og í stað þess að ergja mig yfir því að hafa ekki náð þeim tíma sem ég ætlaði mér (hlaupavitleysa föstudagsins?) þá ætla ég að brosa framan í heiminn og gleðjast inní sjálfri mér.
og annað gleðiefni fyrir daginn: lína á afmæli! hún lengi lifi, húrra! yndislegust [...]

berlín & hasar í peffermill

 
búin að stimpla mig inn á brighton str. eftir fjóra dásemdardaga í hinni stórmerkilegu berlín. í (ör)stuttu máli: þriðjudagur – ungfrúin þreyttust eftir ritgerðarskil, gladdist þó skelfilega við að hitta lottu og laufey og drakk glöð fimm vínglös og át fíkjupasta. fór snemma að sofa. miðvikudagur – rölt með skemmtilegustu stelpunum, smá búðainnlit, keypti mér [...]