Posted on June 28, 2007 by misssigridur
úhú… krydduðu poppdísirnar hyggja á kombakk! átta mig þó ekki á þessari barnslegu gleði sem skyndilega bærist inni í mér, því ég man ekki eftir því að hafa einhvern tíma hlustað á þær þegar frægðarsól þeirra skein sem skærast. en það er þá bara gott að geta glaðst með öðrum. líka tóníblair sem, eftir að [...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on June 27, 2007 by misssigridur
ég spái því að heimsendir sé í nánd – því það getur engan veginn talist eðlilegt að það rigni&snjói í skotlandinu þegar klukkan er kortér í júlí… en þannig er það núna, rigningin og haglið allsráðandi og fólk flýr hvarvetna inn. var lögð af stað í rómantískan göngutúr meðfram kanalnum þegar ósköpin dundu yfir, og [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on June 21, 2007 by misssigridur
hreyfði mig áðan. spennti á mig hlaupaskóna en ákvað að hafa smá tvist á æfingunni. kleif því artúrssæti og þegar upp var komið stóðst ég ekki mátið og lagði mig í grasið – og steinsofnaði. vaknaði skömmu síðar, með stærðar býflugu á öðrum skónum, fiðrildi á hnénu og maríubjöllu á öxlinni. og rjóð í kinnum [...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on June 20, 2007 by misssigridur
Posted on June 20, 2007 by misssigridur
ég væri nú alveg glötuð móðir ef ég hreykti mér ekki af námsárangri dótturinnar? ég fékk sem sé rapport um daginn og lofsöngurinn var svo hávær að ég fékk hellur fyrir eyrun. framan á skýrslunni, sem skannaði maaaaaargar síður af uppörvandi fréttum af afkvæminu, voru sérleg skilaboð frá skólastjóranum: ‘an excellent report, Gabriela!’. sundurliðað var [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on June 20, 2007 by misssigridur
grrrlpáver. gleymdi að óska kynsystrum mínum til lukku með 19. júní, en gleymdi þó ekki deginum. svaf t.d. í bleiku og mig hefur eflaust dreymt rósarrauða drauma þá nóttina. en núna er kominn tuttugasti og farið að styttast í annan endann á þessari skotlandsdvöl minni. get ekki sagt að mér þyki það neitt sérstaklega leitt, [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on June 13, 2007 by misssigridur
gekk frá úrinu mínu um daginn og man að ég hugsaði með mér: “ég á aldrei eftir að finna úrið ef ég legg það frá mér á þessum stað.” gerði það nú samt. needless to say, sama hvað ég brýt heilann þá finn ég ekki bévítans úrið.
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on June 12, 2007 by misssigridur
allt í gamalkunnugri rútínu. fátt æsispennandi og ekkert sem kemur blóðinu á hreyfingu nema síðbúin leynisímtöl við langholtsveginn. er löt við að hlaupa þessa dagana, en fékk réttu hvatninguna þegar ég dreif mig út í ft. kinnaird, sem er laddaparadísin hér um slóðir. þar sá ég svart/hvítu hvernig fimmtán-marsbars og olíusoðinn matur getur leikið kroppinn manns, og [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on June 8, 2007 by misssigridur
einhvern tíma vorum við lína að velta því fyrir okkur hvað starbucks þýddi, enda báðar mikið fyrir kaffið þeirra, og það þrátt fyrir þrálátan orðróm um að fyrirtækið arðræni kaffibændur blákalt. starbucks er sem sé nafn á persónu í bók eftir herman melville og heitir móbí dikk. Svo var líka lautinant í battlestar galactica sem [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on June 8, 2007 by misssigridur
án þess að gera lítið úr frábæru starfi auglýsingastofa og hönnuða, þá verð ég að viðurkenna að ljótara lógó hef ég aldrei á ævinni séð. búin að stúdera það frá öllum hliðum, opna hugann fyrir mögulega tilkomumiklum formum, dýpt, rými og vísan í fjölbreytta samfélagsgerð; en kemst bara að einni niðurstöðu. þetta er ljótt. ljótt, [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »