sakn í bland. nóg að gera en allt skemmtilegt og áhugavert. er eilítið þreytt og alltaf nefstífluð sem mér hefur verið sagt að sé stundum fylgifiskur meðgöngu. myndi baða mig í otrivín ef mér gæfist kostur á því, hella því útá seríósið mitt og drekka það í kokteilglasi. án þess væri ég orðin geðveik, eða [...]

 
innlitið verður örstutt í þetta skiptið, gef mér bara tíma til að draga andann og líta upp frá óteljandi verkefnunum. er sísaknandi annars eftir þögn og friði og stundum verður mér hugsað til gæðastundanna sem ég átti með sjálfri mér á beanscene í embrunni áður en ég fór í tíma í moray house. líka einverunnar [...]

fékk sting í hjartað klukkan tíu en þá var ræst í glitnishlaupinu. en svona er þetta þegar maður er tímabundið gróðurhús? ég er þá staðráðin í að taka þátt næst. annars held ég að allt ísland sé á hlaupum? metþátttaka. en auðvitað tekur maður þannig á vonbrigðum að þá skellir maður í amerískar pönnsur og [...]

 
er orðin sprenglærð í ýmsum kúnstum uppeldisins og líka expert í umhverfislist eftir annasama námskeiðaviku í boði álftanesskóla. búin að kynnast alltof miklu fólki á alltof skömmum tíma og leika mér í náttúrulegum sandkassa í gesthúsavör, minni heimaströnd sem er í aðeins 200m frá ásbrekkunni (sjá mynd). er útúrstressuð en nokkuð kát, bíð spennt eftir [...]

fékk staðfest í hádeginu að krílið mitt er í hörkustuði og við hestaheilsu, en við gunnl fórum í sónar niður á landsspítala. ekkert nema yndislegt að fylgjast með á skjánum og við vorum bæði eitt risavaxið bros.
en svo ég svari henni frænku minni – tilhugsunin um að vera að fara að kenna gerir mig spennta. [...]

 
í gær var ég þessi týpíski íslendingur, með alltof mikið á minni könnu, eilítið áhyggjufull, oft þreytt og úrill útí tilveruna en samt óendanlega hamingjusöm eitthvað, þrátt fyrir að mannsefnið væri með tannpínu. fór mína vikulegu bónusferð, gladdist yfir grænmetisúrvali og verðlagi á sunlolly-frostpinnum. fór líka í mína fyrstu mæðraskoðun og snéri þaðan pirruð því [...]

 
á dauða mínum átti ég heldur von á en að skrifþörfin skyti upp kollinum í hausnum á mér á ný, en þegar maður er latur á við tólf og sefur hálfan sunnudag, er ekki nema von að maður vakni klukkan fimm:fimmtíuogsjö á mánudagsmorgni frídagsverslunarmanna og reyni örvæntingafullar leiðir til að fylla upp í og græða [...]