nú hefur heimilið loks skriðið saman að fullu og hefur myndast afbragðs vinnuaðstaða fyrir húsfrú og fylgifisk hennar í aukaherberginu. og ég er ekki frá því að vinnugleðin hafi aukist að sama skapi, búin að fara yfir þúsundogátta ritgerðir, búa til verkefni og hefja skrif á lokapappír annarinnar. eygi líka mastersstöffið í hillunni og það [...]

úha, horfi niður á belginn og tel spörkin í tölvuna, króinn er nefnilega tölvufælinn með eindæmum og mótmælir ákaflega þegar móðurgarmurinn sest með lappann í fangið. annars var þetta með eindæmum góður dagur, svaf lengi, vaxaði fínasta eikarborðið mitt meðan húsbóndinn lakkaði skáphurðir af miklum móð, horfðum svo á heimildamynd um kókaínkúreka í míamí og sofnuðum [...]

eitt sinn leit ég hiklaust í augu lítils frænda og mælti hinn ódauðlegu orð: sykur er eitur. hafði þá í undanfaranum hlustað á brian tracy tala um næringu barna og talaði hann þá um hvíta eitrið, salt, sykur og hveiti. hef ekki, fyrr eða síðar, hlustað á þann mann. en þetta rifjaðist allt upp fyrir [...]

fyrir þó nokkru endurheimt úr danskri dásemd og liðu kaupmannahafnardagar ljúft og örugglega í kulda og raka og fáeinum ferðum í há&emm. það var frábært að kynnast mági mínum og svilkonu sem búa í skemmtilegri íbúð í nörrebrö, ásamt þrettán ára dóttur. það var líka miklu skemmtilegra að drekka te og meyjarkokteila í þeirra félagsskap en [...]

farin að sofa. mín bíður stuttur svefn og svo flug í undraborgina. ætla að sjoppa smá, stelast í súsjí, drekka meyjarkokteila og leiða prinsinn minn um kaupmannahafnískar götur.
 tjá.

a day’s thought…

emmhá var æði og einhvern veginn allt annar kúltúr viðloðandi steinsteypuna en í effá. skyldi þó kannski engan undra, fyrrnefndur skóli tekur inn nema eftir einkunnum en hinn ekki. dáldið elíta í gangi verð ég að segja. kem sjálf úr elítuskóla, líka þeir sem koma úr emmerr og versló. hinir hirða hismið og jaðarbörnin. langaði [...]

all that glitters is good

snjókorn, jólakúlur, glingrið mitt. líka baðvatnið mitt og stjörnubjartur himinn. allt eftirsóknarverðir hlutir og innan seilingar, nema snjórinn sem nær ekki lendingu út af þessu fjandans roki sem alltaf hvín hér á bestanesinu.
lífið gengur annars sinn vanagang, uppþvottavélin bíður tæmingar, sömuleiðis þvottavélin, verkefnabunkinn ætlar seint að minnka líka, þarf að nota daginn vel því ég [...]

 
litli hormónaboltinn minn átti við móður sína örlitla orðasenu í gærdeginum sem snérist alfarið um litlar sýndarmörgæsir og getuna til að dressa þær upp samkvæmt hátízkunni og búa þeim dísent skjól, en slíkt kostar fimm dali mánaðarlega (hún rétti mér fimmhundruð kall og sagðist ætla að sjá sjálf um greiðslurnar…). móðurgarmurinn gaf sig, að lokum, [...]

 
undursamlegur dagur, kaldur og tær.
þessi 1. nóvember er merkilegur fyrir margar sakir - elskulegur davíð ólafsson, línumaður, hefur náð þrjátíuogsexárunum - til lukku! hún lista-lotta á líka afmæli, ég sendi henni ást og kossa í tonnavís. og hann afi minn hefði orðið 77 ára, hefði hann lifað. hann er kannski órafjarri, en kossana fær hann samt, í þúsundatali.