*geisp…* endaði næturbrölt mitt á vænum dúr frá níu til eitt, eftir hádegi þá. líkamsklukkan sem sé orðin verulega vanstillt. hitti svo ljósuna mína um tvö og vill hún ólm fara að senda mig í snemmbúið fæðingarorlof, en ég hristi bara hausinn, um sinn allavega. allt er í orden, blóðþr með ágætum og járnbúskapur líka, en [...]

smá póst-jólapistill í nætursárinu? sofnaði snemma og vaknaði um fjögur, og ákvað að nýta friðinn og spektina í vinnu. á meðan getur gunnl hvílst því ég er erfið þessar vikurnar víst – brölti óendanlega og sný mér með látum, og gleymum heldur ekki mínum sérlegu svefnsinfóníum sem gætu víst vakið meðalstórt þorp á landinu bláa, [...]

 
þetta ár er búið að vera rússíbani og það er svo sem óhætt að segja að lífið hafi tekið stakkaskiptum, á svo ótalmarga vegu. ég framkvæmdi hluti sem ég hélt að mér væru engan veginn mögulegir, týndi hjartanu og bjó til barn á viku, með ákaflega góðri og ljúfri aðstoð þá auðvitað! bjó í tveimur [...]

á einum stað stendur skrifað að maður eigi að eyða hverjum degi og hverri stund í að hlúa að ástvinum og ganga þar einbeittur til verks því enginn veit hve lengi það tækifæri varir - dagurinn býður upp á þungan hug og lúrir hann hjá fjölskyldu einni á brunnstíg sem á ekki lengur tækifærið en sækir [...]

sá the golden compass í morgun með miðstiginu, dáldið ruglingslegur myndverknaður þar á ferð en engu að síður var fjör. skemmtilegast fannst mér þegar aðalpersónur voru staddar í trollsund í noregi, en þar töluðu heimamenn íslensku. bjarnarþjóð bar líka rammíslensk nöfn eins og ragnar sturluson og jórekur bjarnason. eins og ég sagði, fjör.
 vil koma einu [...]

jólakraftaverk gerðist á ásbrekkunni í morgun – erum nefnilega búin að vera að glíma við leiðindaóþef úr niðurföllum eftir að dælubíll kom og gruflaði í holræsi götunnar fyrir um viku síðan. nema hvað, næsti nágranni er pípari og gunnl brá á það örþrifaráð að bjalla í manninn á helgum sunnudegi. sem kom á stökki og [...]

aldeilis hressandi þetta hávaðans rok, það virðist líka hafa undarleg áhrif á fólk svona almennt, allavega sá ég fólk brosa meira í dag en aðra daga og krakkarnir skemmtu sér konunglega. síðan skemmdi ekki fyrir þegar samkennari minn vildi gleðja veðurbarna vini sína og bakaði handa okkur ljúffengar skonsur með morgunkaffinu. allavega, þreytan fauk ekki [...]

það er eitthvað undarlegt í andrúmsloftinu, því ég er með öllu að verða batteríslaus. hugsa bara viku fram í tímann en þá kemst ég í frí frá kennslunni og get loks einbeitt mér að mikilvægustu hlutunum. er núna að rembast við að skila af mér verkefnum, alltof seint auðvitað, og finna þá viðeigandi sálarró í [...]

verð að deila með mínum hring þessum ægifögru myndum af fallegustu stúlkunum í alheiminum en þær koma af vefnum hjá dóru&víði - vonandi er mér fyrirgefið…

barnaspekin

nemandi: sigga dóra? ég: já? nemandi: ég skil ekki af hverju strákarnir í bekknum eru svona uppteknir af stelpunum og stelpurnar af strákunum. ég á nú bara erfitt með að koma mér fram úr rúminu á morgnana…