þáttur dagsins af hugrökkum&afskaplegafallegum, heimasætan kemst á himnastall þegar hún er valin stelpa mánaðarins á vefsíðu aðalmiðstigsnaglanna í heimaskólanum, svífur um með sigurblik í augum og bros sem þvæst ekki af með neinu góðu móti. takmarkinu er náð, hún er inn, komin í aðalkrádið, viðurkennd. vantar bara silfraðan klappstýrubúning og pompoms og þá er veröldin [...]

allt á uppleið

nema bumban á mér. gabríelan er hitalaus, hristi af sér þessa pest eins og fyrir töfra og nýjasta hugmyndin að ríkidæmi er að taka úr henni sýni og vinna mótefni úr þessu eðalblóði sem um æðar hennar rennur. heimilisiðnaður 21. aldar. BloodWork Inc, ásbrekka 1, álftanes.
en kúlan er á niðurleið, blessuð. teygir sig hægt og [...]

 
dásamlega hvítur og vindasamur þriðjudagur. svona hanga-inni stemming, enda komin í… og haldið ykkur fast…. fæðingarorlof! hverjum hefði hugkvæmst það á einhverjum tímapunkti? reyndar nokkrar vikur í prinsessuna (komin 37,5v) en líkamsformið bara leyfir fátt þessa dagana. stundum líður mér eins og hrúgaldi, aum í grind og beinum og svo fer geðið út um víðan [...]

a! a! a! ég hlýt að mega deila þessu með alheiminum, en gabríela ósk verður tvöföld systir á þessu heillaári, því ví&dó ákváðu að feta líka barnaveginn og koma til með að stækka sitt fjölskyldujúnit í júlí næstkomandi! þrjú systkini! og svo býst hún við fleirum, a.m.k. einu enn frá föðurnum og svo einu frá [...]

hjörtun á karl faðir minn sem er 55ára á þessum dásamlega mánudegi. heillaóskir! það er bara eitthvað sjarmerandi við svona veðurlag, snjór, birtan, húfa, vettlingar, ósýnilegur töfrasnjókall á pallinum. best að njóta áður en þetta ástand líður undir lok, sem á víst að gerast einn-tveir og -þrír.
helgin var ánægjuleg, fékk skutluhópinn í dinner á fös, [...]

ái bara, betrihelmingurinn í bisniss í höfuðborg norðurlands og við mæðgur á nesinu í hundleiðinlegu veðri. það er vont að vera einn, eða hálfeinn, því síðburðurinn sparkar þessa dagana án afláts og ýtir á hina undarlegustu staði. ég sef því lítið, og þegar sá lúxus býðst þá taka undarlegir draumar völdin. það bjargar miklu að [...]

þeir eru margir, janúarenglarnir. ísak páll átti afmæli 5. jan og másan í gær, arna björk gunnlaugsguðdóttir varð líka heilla fjórtán í fyrradag og faðir vor er fimmtíuogfimm næsta mánudag. yndislegt bara, og árnaðaróskir frá okkur sveitungum.
tom&annie eignuðust svo litla prinsessu, charlotte, nú um daginn og það eru svo æðislegar myndirnar sem ég hef fengið [...]

 í allri þessari hagnýtu þjóðfélagsumræðu um ber brjóst á íslenskum sundstöðum og hógværar embættisveitingar leita á mig hugsanir um vinnustöðvun og auknar húsmóðurskyldur. mér reiknast sem svo að ég eigi eftir um hálfan mánuð í kennslu, og er nánast við það að taka þá ákvörðun um að hætta í HÍ, tímabundið þá. af hverju ekki [...]

reporting from ásbrekka youth center… merkilegur barnafjöldinn annars sem rennur þessi misserin í gegnum herbergi heimasætunnar, og er það bara vel. verst að allir eru svangir og þyrstir, og þótt ég gangi nú aðeins svo langt að mata grísina á ávöxtum þá er samkeppnin mikil meðal mæðranna. sumar leggjast í bakstur og vippa á nó [...]

gleðilegt nýtt ár og allt það, þakka að sjálfsögðu lesturinn á árinu sem kvaddi. áramót komu og fóru, tiltölulega meinlaus líka, bar minn stóra kvið inn í nýjan tíma og sofnaði á skikkanlegri klukkustund. átti því afburðagóðan nýársdag í ektamannsfaðmi og með mér kviknuðu, heldur óvænt, alls kyns dularfullar hreiðurgerðarhugmyndir er tengjast nýju afkvæmi. allt [...]