an impressive day, as i somehow managed to dress myself before noon and go for a short drive in the sun. my mind was nevertheless at home with the wee one and gunnlaugur so i’m not sure just how successful i was in re-establishing my external self and expose my pale face to the bright [...]

er að prófa nýtt vefmyndaforrit, tékkið á nýjum myndum á http://picasaweb.google.com/sigridurp/DamanNRmynd02. vonandi er þetta ekki eins þungt í keyrslu og speisið.

rauð, rauð, rauð, er rósin hennar mömmu…

yndislegur mömmulíngur á afmæli í dag, og sendum við henni sjóðheitar ástar- og árnaðarkveðjur! sömuleiðis átti undurfögur áróran fimm ára afmæli í gær og fær hún sínar góðu heillaóskir líka. febrúar á sína góðu gimsteina…
björninn er annars skriðinn úr hýði sínu og í ræktina, heimasætan er í boltanum og rauðhærð snúlla sefur nú vært í [...]

fallegar og þreyttar systur….
annars er allt fínt að frétta, litlasnúll sefur sem aldrei fyrr og lætur bara í sér heyra þegar hún vill að móðurgarmurinn fletti sig klæðum og næri hana með það sama. eiginlega ótrúlegt að það sé liðin rúm vika síðan ég fæddi hana? allt fallið í ljúfa löð og ég hef endurheimt [...]

ég man þá tíðina þegar ég þurfti, í eitt einasta skipti á minni skylduskólagöngu, að heimsækja skólastjórann. gekk ég að skrifstofu hans með oftifandi hjarta og rjóðar kinnar, og þurfti svo að sitja augnföst við virðulegan manninn og hlusta á ræðu sem snérist aðallega um að maður ætti ávallt að fyrirgefa náunganum bresti hans og [...]

var að setja inn myndir af fyrstu baðferðinni…

halló heimur…

vildum kasta stuttri kveðju til ykkar, og þakka enn og aftur fyrir allar fallegu athugasemdirnar á síðunni, í tölvupósti og símleiðis. það blómstra allir á ásbrekkunni, og þó langmest sú stutta sem er loksins farin að fá móðurmjólkina sína. þau feðgin sofa nú á sínu græna og hafa það notalegt – og þá ákvað [...]

hér er svo lítil og nýfædd gunnlaugsdóttir…

 set svo fleiri myndir á speisið á eftir. en þetta gekk nú allt saman eins og í ’sögu’, við fórum upp á fæðingardeild um hálfátta og voru þá hríðarnar orðnar mjög harðar og tíðar, eða um 2mín á milli. þegar á sjúkrahúsið var komið var svo mínúta á milli [...]

 
sit hérna í nóttinni, og nýbúin að gleypa í mig þann alskelfilegasta raunveruleikaþátt sem sögur fara af, high school reunion. og þar sem ég sat og velti fyrir mér mögulegum íslenskum staðgenglum úr kvennó, mínu gamla menntasetri, fer ég að taka eftir reglulegum pílum/verkjum. ekkert alvarlegt samt, en þó. svona verkir geta væntanlega staðið yfir [...]