Next Post

ég man þá tíðina þegar ég þurfti, í eitt einasta skipti á minni skylduskólagöngu, að heimsækja skólastjórann. gekk ég að skrifstofu hans með oftifandi hjarta og rjóðar kinnar, og þurfti svo að sitja augnföst við virðulegan manninn og hlusta á ræðu sem snérist aðallega um að maður ætti ávallt að fyrirgefa náunganum bresti hans og gjalda aldrei í sömu mynt. guð kom til tals og auga fyrir auga, tönn fyrir tönn og annað slíkt. þessi skólastjóri minn var líka skátahöfðingi mikill og trúði statt og stöðugt á það góða í öllum, og var það svo að maður bar óttablandna virðingu fyrir honum.

nú ber svo við að dótturpésinn, sá eldri þá, á að mæta til skólastjóra rétt eftir níu á eftir. brotið snertir hana óbeint, en hún var hluti af stúlknahópi sem á að hafa elt eitthvað aumingjans grey til að inna hana svara af hverju hún stakk fingri ofan í grillað brauð einnar þeirra. endaði ágreiningurinn á því að greyið sló til einnar úr vinkvennahópnum og nú verður öllum skóflað í viðtal. en var dóttirin full af óttablandinni virðingu þegar hún yfirgaf heimilið í morgunsárinu? nei, aldeilis ekki. því nú skal mætt til teboðs, þar sem stúlkurnar bjóða skólastjóra í mjólk og skúffuköku og ræða bresti sína og misgjörðir við notalega stemmingu. nýji tíminn?

og fleira skemmtilegt af frumburðinum. fjórir afbragðssnjallir drengir úr mínum bekk ákváðu að gera myndband um fjórar vinsælustu stelpur árgangsins, og er dótturpési ein af þeim. þetta myndband, sem ber titilinn gelgjurnar 4, er nú inni á youtube og það sem ég skemmti mér yfir því (altént fyrri partnum)! hreinlega verð að leyfa ykkur að njóta með mér…

af stuttfætlingnum er allt fínt að frétta, hún dafnar afskaplega vel og er mesta yndið. drekkur vel og sefur út í eitt, jafnvel farin að brosa ögn (um þetta er þó ágreiningur) og tekur lífinu bara af stökustu ró. þau feðgin sofa nú sem steinar. framundan er útskrift uppi á barnaspítala og hádegisheimsókn, sem sé, allt algjörlega eins og það á að vera og lífið barasta yndislegast.

4 Responses

  1. Bara snild !

  2. Heyrðu þetta með brosið :-) Var ekki talað um vind :) Æ það er orðið of langt síðan ég átti svona snúllu. Láttu mig endilega vita hvenær ég má koma og knúsa ykkur.

    kv, Kolbrún

  3. Æ bara varð að kvitta og óska ykkur til hamingju með fallegu dömuna ykkar:)

    Agnes var ekkert smá glöð að Gabríelu-systir hafi fæðst á afmælisdaginn sinn:) Nú bíður Agnes bara eftir að systkini sitt komi í heiminn..vonandi innan tveggja vikna:) Aldeilis ríkar vinkonur!!

    Sendum knús á Gabríelu:)

    Kv. frá Jóhönnu og co í Hveragerði

  4. elsku kolbrún, komdu fagnandi hvenær sem er :). allir við hestaheilsu og tilbúnir að taka aftur á móti veröldinni.

    og takk fyrir kveðjuna, jóhanna, og gangi þér vel þessa síðustu metra! skila kveðjunni til heimasætunnar.

    kv, sí

Leave a Reply