Posted on March 31, 2008 by misssigridur
hér sjáiði dömuna í morgunleikfiminni. ekki beint líkleg til afreka þarna, þótt komin sé af afreksmönnum. allavega, fór í 6 vikna skoðun í morgun og lofar góðu, flott eintak sagði doktorinn og foreldrasettið brosti hringinn. og nú er bara að æfa skottið í að lyfta höfðinu blessuðu.
[og þá er bara að ýta á litla þríhyrninginn í [...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on March 30, 2008 by misssigridur
sólskinsbros á sunnudegi, og til hamingju með afmælið, elsku kamilla okkar…
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on March 29, 2008 by misssigridur
gerðist sushi-kokkur í gærkvöldinu í fyrsta skipti og tókst það held ég með ágætum. maturinn bragðaðist stórvel en skemmtilegast þótti mér þó allt umstangið, og svo félagsskapurinn auðvitað. settið sem erla gaf okkur í haust reyndist líka frábært og gaman að bera fram á því.
en ég er grútsyfjuð. hendi inn nokkrum myndum á píkasa.
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on March 27, 2008 by misssigridur
meiri gærdagurinn. ekki bara sló ég persónulegt met í nöldri og tuði og argasta svartsýnisrausi, heldur endaði hann á sjúkrahúsi en eldri skonsan þurfti snara læknisaðstoð út af barnaexemi á fótum. og á vaktinni var lítil og þybbin hjúkrunarpísl sem hét dúfa og eyddi hún heilum tveimur tímum í að dúllast við fæturnar á skvísinu, svo mjög að [...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on March 26, 2008 by misssigridur
það er stundum merkilegt þegar fólk spyr og hefur mjög einhæfar væntingar til svars. það truflaði mig t.d. þó nokkuð þegar fólk spurði mig á meðgöngunni hvernig mér liði. ég vissi sem var að fólk ætlaðist til að ég svaraði á jákvæðu nótunum, að mér liði auðvitað eins og blómi í eggi og liti veröldina bleikum [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on March 26, 2008 by misssigridur
og fyrst ég er komin í rithaminn, þúsund kossar frá skonsunni til ragnheiðar frænku fyrir rúmfötin fallegustu sem hún sendi um daginn…
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
Posted on March 26, 2008 by misssigridur
varð að henda inn mynd fyrir ömmuerlu og berglindifrænku á norðurbrú, sem gaf dagbjörtu þennan líka fallega kjól sem mun eflaust gagnast um næstu jól.
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on March 26, 2008 by misssigridur
ótrúlegt hvað heimsendatónn og krepputal fara í taugarnar á mér. á matvælaverð að hækka um tuttugu prósent? þá verður að fórna einhverju af matardisknum, rétt eins og sunnudagsbíltúrnum. samkvæmt mínum bókum myndi slík prósentuhækkun þýða um tvöhundruð þúsund krónur á ári fyrir mitt heimili, þannig að kjarabætur kennara mega nú aldeilis verða frambærilegar eftir að samningar [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on March 22, 2008 by misssigridur
vildi bara óska ykkur gleðilegra páska og láta vita af nýju albúmi á píkasa, http://picasaweb.google.com/sigridurp/FermingRnuBjarkar.
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on March 21, 2008 by misssigridur
oftast finnst mér undralandið [usa] undarlegast en ekki á þessum sólríka degi. var í bókainnkaupum á amason þegar eitt leiddi af öðru og fyrr en varði hafði ég líka verslað þessa líka fínu batterískeyrðu nefpumpu sem spilar tólf tóna fyrir önuga horgemsa. dagurinn batnar því bara.
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »