sjá skottið með nýja manjú-bangsann sinn sem barst frá borgartúninu í dag. og sjá líka fína undirhöku, sannkallaður gæðastimpill á mjólkurframleiðslu móðurinnar, engin fjörmjólk þar á ferð heldur kremgulur eðalrjómi sem fyllir fljótt á kinnar nýfædds stelpugorms. barnið er annars búið að sofa af sér daginn og sefur enn, kannski ávísun á andvökunótt en hver veit? [...]