constipation-leunig.jpg

fórum í súshí í hveragerði á föstudagskvöldinu og þvílík veisla… verst að við þurftum að skiptast á að borða eða borða standandi á öndinni því unga daman var á orginu – enda klukkan orðin nítján og nánast dagleg magakveisa farin að gera vart við sig. þannig að, við vorum eiginlega ekki húsum hæf, ef satt skal segja. um leið og pían var komin í bílstólinn og lögð af stað yfir heiðina var eins og skrúfað fyrir sársaukann og það heyrðist ekki múkk í henni það sem eftir lifði dags. en við tókum þennan séns eftir tvö góð kvöld og svona fór það, gærkvöldið var líka viðburðarríkt og enduðum við í bíltúr um nágrennið í sólarlagi, með lítt góðum árangri þó. auminginn litli, það er greinilegt að upprunalega planið að vera á vappi með hana í vagninum í klukkustund á hverju kvöldi verður að fá að standa, og ekkert múður.

annars kætir leunig mig. og köld sólin þessa dagana. búin að ganga þrisvar inn í hafnarfjörð í vikunni og þvílík sálarhreinsun, þarf bara að finna hleðslutækið fyrir ipod-inn og þá er ég geim í hvað sem er.

gabríelan átti að vera að keppa í fótbolta í keflavík í dag en leiknum var frestað. því miður bara, hún er búin að vera þvílíkt dugleg upp á síðkastið og stundar herbergisæfingar af miklu kappi líka, því hún ætlar að fá “sikspakk” og ægisterka lærvöðva. hún er annars í for-páskafríi hjá föðurfjölskyldunni og kemur væntanlega ekki aftur í sveitina fyrr en á miðvikudag, í tæka tíð fyrir ferminguna hennar örnu bjarkar sem kemur frá baunaríki á morgun til að staðfesta skírn sína.

annars var ég að skoða fermingarauglýsingu frá ikea og hló hátt, það eru nefnilega heil 21 ár síðan ég fermdist og tíminn hefur þá náð að bíta í rassinn á sér og fara heilan hring því litaþemað í herbergi nútímaunglingsins er það sama og í fyrndinni, hvítt, svart og rautt. þá erum við að tala um sprautulakkaðar spónaplötur og málmrúmgjarðir. eintóm smekklegheit.

en hvað vaki ég um miðja nótt? best að skríða aftur undir sængina og láta sig dreyma um annan sólbjartan dag.

Leave a Reply