litla magakveisudísin mín liggur nú í sling/magapoka framan á móður sinni og póstar með móðurinni á heimsnetinu. bylting? það á eftir að koma í ljós, en frjálsheitin eru altént meiri og báðar hendar lausar. og það hljómar enginn grátur á ásbrekkunni.

snúllan er eins mánaða í dag og í tilefni hans greip hún snuðið góða í heilan hálftíma. kvöldsöngurinn er bara orðinn þessháttar að snuð myndi e.t.v. gera hitt heimilisfólkið hamingjusamara, og líklega hugga dagbjörtu eitthvað, vonandi. en það er bara að lifa í voninni…
annars bíðum við mæðgur spenntar eftir unnsteini frænda og föruneyti sem eru á [...]