Posted on May 31, 2008 by misssigridur
ans! var að plokka úr mér gráu hárin sem stinga sér eins og illgresi í kollinn á mér. enda orðin þrjátíuogfimm. og þriggja daga.
gærdagurinn var annars hreint með ólíkindum. asnaðist í smáralind með heimasætuna því hún gat ekki farið í æfingarbúðir nema í skærgrænni púma-peysu. þaut svo í rúmfatalagerinn til að kaupa dýnu fyrir hana [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on May 29, 2008 by misssigridur
ansans. það þurfti suðurlandsskjálfta til að eyðileggja fyrir mér afmælisgleðina. en allavega, ég fæ þá þrjá næturgesti úr hinu skjálfandi hveragerði til að borða með mér afmæliskökuna – ásamt mínu yndislega heimilisfólki.
Filed under: Uncategorized | 5 Comments »
Posted on May 29, 2008 by misssigridur
…ákaflega merkilegur dagur í mannkynssögunni, ekki síst fyrir þær sakir að á þessum degi fyrir 55 árum komust hillary og tenzing fyrstir manna á tind everest og árið 1973 fæddist lítil akureyrísk snót á norðurlandi íslands. wisconsin varð einnig þrítugasta ríkið í ríkjasambandi norður ameríku á þessum degi, bing crospy tók upp white christmas í kaliforníu [...]
Filed under: Uncategorized | 8 Comments »
Posted on May 27, 2008 by misssigridur
var að tala til flórída og langar að stökkva í sól og sumaryl, búin að fá mig fullsadda af þessu roki úti? tja, annað hvort flórída eða egilsstaðir. en nú ætla ég að planta blámanni sparigrís á áberandi stað og fara að safna fyrir undralandsferð.
eins og ég sagði áðan, þá erum við öll hálflúðruð eitthvað. og [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on May 27, 2008 by misssigridur
dásamleg afmælishryna yfirstaðin, tja, allavega afmælisveisluhryna! allir líka hálf-tuskulegir en afskaplega ánægðir auðvitað. lokapunkturinn var fjölskyldupartí gabríelu í gærkvöldinu, og mættu margir og var mikið fjör, og dóttirin óteljandi gjöfum ríkari. náði þessari sætu mynd af systrunum, og svo er nú stutt í að það fjórða bætist í hópinn!
raunar fengum við öll pakka í gær [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on May 26, 2008 by misssigridur
*******************************************************************
það var fyrir næstum 11 árum síðan að ég vaknaði upp á eiríksgötunni með verkjapílur í bakinu – og um átta tímum seinna fæddist litli engillinn minn. sem er ekki svo lítill lengur, heldur hávaxin og flott stelpa með bein í nefinu, sem gerir okkur öll ákaflega stolt á degi hverjum!
hún er bara yndislegust og [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on May 22, 2008 by misssigridur
einfaldlega dásamlegur gærdagur og þar sem ég á von á því að únginn vakni hvað úr hverju þá hleyp ég hér á stiklum: gunnl vaknaði og fékk pakka, horfði á heimatilbúið myndband sem við mæðgur útbjuggum og fór á ljósmyndasýningu á eigin palli/garði. skutluðum lillu í pössun og brunuðum í lónið þar sem drengur fékk [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
Posted on May 21, 2008 by misssigridur
[draumaprinsinn? ljóshærð útgáfa af dagbjörtu?]
vaknaði við hlið þessa manns í morgun og gladdist í hjartanu því hann er fertugur í dag! hafði þó ofurhljótt því tíminn hafði vart sleppt morgunsárinu og drengur enn í draumalandinu.
framundan er yndislegur dagur og allar dýrmætar mínútur verða nýttar til að fagna þessum áfanga.
því hann er svo sannarlega draumaprinsinn minn.
Filed under: Uncategorized | 6 Comments »
Posted on May 17, 2008 by misssigridur
snúllan er 3 mánaða í dag! í tilefni dagsins er hún með allhrikalega vaxtarverki, sýgur brjóst eða hnefa án afláts og slefar eins og henni sé borgað fyrir það. svo sefur hún annað hvort ekkert eða út í eitt.
gabríelan landafjandast á meðan og foreldrasettið hamast úti á palli. heimurinn heldur sem sé áfram að snúast.
[...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on May 17, 2008 by misssigridur
þetta er litli fallegi garðálfurinn minn sem stendur efst við stigauppganginn að húsinu. ísak páll, bestifrændi, kom í heimsókn í gær með ömmu sinni, og á heimleiðinni í bílnum sagði hann:
“amma, rosalega er sigga frænka sniðug að hafa svona álf í garðinum hjá sér sem segir velkomin. hún þyrfti samt að eiga annan til að [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »