Posted on June 30, 2008 by misssigridur
kúdos, ikea. ekki bara býðurðu upp á hræbillegt og nánast gefins leirtau, margarítur á kostakjörum og kjötbollur í tonnavís, heldur ertu sérlega barnvæn. vissuði til dæmis að litlu gerber-krukkurnar í kaffiteríunni eru ókeypis? og að skiptiaðstaðan býður upp á bleiur, án endurgjalds?
ekki það að dagbj sé gengin til liðs við gerber-mafíuna, en hefur samt smakkað, [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on June 30, 2008 by misssigridur
þetta sumar ætlar að verða sérstakt, vegna margra hluta. veðrið er svo fáránlega indælt eitthvað að ég geri allt hvað ég get til að vera úti, en stundum stend ég bara úti á palli og anda djúpt, kasta pílum í útipíluspjaldið okkar, og áðan klippti ég gras, með sníðaskærum, svo minn heittelskaði geti haldið áfram [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on June 22, 2008 by misssigridur
afsakið hlé.
ungfrúin nýtur ofgnóttar sólar um þessar mundir og skrifar um gagn og gaman á öðrum vettvangi. þá með þúsund og eina freknu. nýtt sumaralbúm á píkasa.
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on June 15, 2008 by misssigridur
hefur mér mistekist að uppfræða heimasætuna fyllilega vel um jafnrétti kynjanna og í alla staði sambærileg hlutverk þeirra? á sólardeginum mikla í síðasta viku (miðvikudagur minnir mig) lá gabríelan í sólbaði og bókalestri úti á palli og tók þá eftir því að alls staðar voru svartar flugur að “eðla” sig (svona fastar saman á afturendanum). [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on June 14, 2008 by misssigridur
laugardagur og gulli byggir kominn í pallaverkin. líklega það allra síðasta að sinni, en nú skal vökva viðinn með viðarvörn, grænleitri þá að hætti húsfreyjunnar. gabríelan í hveragerði og skottið sofandi á sínum uppáhaldsstað – í herbergi heimasætunnar þar sem bleikur skuggi hvílir yfir öllu. ég er ennþá á náttfötunum og drekk mitt dísæta te, [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on June 12, 2008 by misssigridur
ó, ég er svo óttalega stolt af stóru skottu, ekki bara lagði hún það á sig að hjóla frá nesinu í suðurbæjarlaug í hafnarfirði, heldur ákvað hún að hjóla ein til baka til að mæta á fótboltaæfingu og skilja þar með eftir vinkonurnar/liðsfélagana fjóra sem völdu að skrópa og vera lengur í sundi. og ekki [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on June 12, 2008 by misssigridur
gleymdi að minnast á það að þrjár af mínum bestustu vinkonum eru allar komnar í nýjar og fínar stöður/vinnu, en lína og kolbrún klifra hratt framastigann hjá reykjavíkurborg og heiða er orðin öldungardeildarstjóri MH. innilega til hamingju – þið eruð bara frábærar og ég er stolt af því að hafa ykkur í mínu liði.
…svona ef ég fæ [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on June 12, 2008 by misssigridur
snúllan fékk þessa voðasætu húfu senda frá ingu frænku af ströndum og var þetta líka afskaplega ánægð með hana! hún bíður næsta veturs því nesið er veðurblíðan uppmáluð og á pallinum voru heilar 33 gráður og glampandi sólskin þegar best lét í gær, og ber húð húsfrúarinnar þess greinileg merki (rauð sem epli). særún ósk [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
Posted on June 11, 2008 by misssigridur
litla krílið mitt stækkar og vex eins og baunagras. ég sé sífelldar þroskaframfarir hjá henni, og mátti ég t.d. halda á henni hálft álftanesið í gær því hún sætti sig ekki við að hýrast ofan í kerru og sjá ekki umheiminn. og þannig gengum við um, ég ýtandi kerrunni með einni hendi og haldandi á [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on June 5, 2008 by misssigridur
heimasætan er að keppa í sínum öðrum íslandsmeistaramótsleik eftir hálftíma. ég segi þá bara áfram umfá og áfram gabríela! ég og dagbj mætum auðvitað á þennan heimavallarleik, sem og aðra leiki.
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »