ég sagði við gunnl í morgun að ef viðskiptaáætlanir hans gengu ekki upp í vetur (sem er víst ekki opsjon, því “svona hugsa ekki sigurvegarar”), þá ættum við að opna starbökks á álftanesinu. ómæ, ég gæfi mikið fyrir að geta rölt út á horn og fengið mér frappa og krokmönsjör.
svo las ég þetta á emmbéell í hádeginu.
var [...]

íslendingar, ég lýsi hér með yfir vinnulausum degi í tilefni af einstöku blíðviðri.

bláeygð feðgin að knúsast í morgunsárinu.

og svo er leikið síðdegis!

svo virðist sem rauðhausinn sé á sífelldum flótta, því svona finn ég hana iðullega eftir dagblundinn. komin á magann, fætur milli rimla, og stundum felur hún sig með því að draga rúmhengið vandlega yfir sig. það er stutt í að ég verði að lækka rúmbotninn, því við viljum helst halda gorminum á heimahögum.
annars er heimasætan komin [...]

þeir sem koma í heimsókn á morgun fá svona köku og ilmandi kaffi. þetta eru ekki mútur, bara loforð um ljúfa munnbita. myndir er annars skelfilega stolin, ég biðst forláts.
annars er gormurinn búinn að sofa í allan dag nánast, enda vaknaði hún ógurlega oft í síðustu nóttunni og gerði foreldrasettið bæði baugótt og geðillt. ég [...]

ekki er öll vitleysan eins…

“er aðeins of mikill mánuður eftir þegar peningarnir eru búnir? mæður og kennarar eru sérstaklega verðmætt afl í Herbalife viðskiptunum.”
þetta las ég á auglýsingaborða á facebook rétt í þessu og klóraði mér ákaft í hausnum í kjölfarið. ekki aðeins gefur auglýsingin til kynna mögulega baneitrað og viskueyðandi innihald þeirra efna sem um ræðir, heldur sýnir [...]

úfin gabríelan og kamilla með smælkið bróðir sinn! systkinaböndin eru eiginlega áþreifanleg og fallegt hvernig þau horfast í augu. annars grét ég bara þegar ég frétti af fæðingu drengs og vil trúa því að ég eigi alveg pínkuoggupínupons í þeim stutta.
[þessi mynd er annars stolin af myndasíðu dóru, en ég held að hún muni alveg fyrirgefa [...]

erkieldhúsdrottningin martha stewart er á landinu og mér finnst viðeigandi að hún heimsæki mig á leiðinni á bessastaði, eftir humarveisluna á eyrabakka með forsetanum og dorrit. við gætum kennt hvorri annarri eitt og annað. t.d. er ég alveg viss um það að hún gæti kennt mér allt um verðbréfaviðskipti (mínus innherjasvik þá auðvitað) og ég henni fullkominn súfflé-bakstur.
það [...]

helgin flaug hjá á hraða ljóssins og skyndilega eru bara níu mínútur í mánudag? en fátt gerðist svo sem, gunnl golfmót-aðist út í eitt og sólbakaðist líka, dagbj hélt áfram að vera björtust og gabríelan ákvað að vera aðra viku í hveragerði. ég? týni hugsunum í sífellu. sem kemur sér dálítið illa þegar maður er í [...]

gabríelan er enn og aftur orðin stolt stóra-systir, og í þetta sinn eignaðist hún lítinn bróðir! við erum öll í skýjunum! mál prinsins eru víst rúmar 15 merkur og 54 sentímetrar, en til gamans má geta að dagbjört var tæpar 15 merkur og 52 sentímetrar. og þar sem að það er 17. júlí þá eru sléttir [...]