Posted on August 31, 2008 by misssigridur
jæja, engin dramatík af höfuðstöðvunum, bara þetta notalega venjulega og hefðbundna. kennarinn í mér er reyndar í tilvistarkreppu, en það ætlar að reynast erfiðara að fá unglingana á sitt band en að klífa á stuttbuxum á everest. ég meina, hvernig er komið fyrir æzku landsins? ræði þetta betur síðar. það er líka bara vika liðin [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on August 28, 2008 by misssigridur
pínkupöns update, þrátt fyrir að ég nenni ekki að hamra á lyklaborðið eftir nýafstaðið pikkerí allt saman. en ritg er komin 99% á koppinn, fékk fídbakk í fyrradag og svona líka ljómandi, ég hef víst “produced a very fine and interesting work”. svo eru þeir líka “delighted” yfir að ég skuli vera að klára og [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on August 22, 2008 by misssigridur
svona er smábæjarstemmingin í hnotskurn, en hér er fjöldi mikilsverðra bæjarbúa saman komnir til að fagna því að álftanesið hefur nú eignast sín önnur gönguljós. og þá er tækifæri til að úða í sig pylsum og drekka pepsí, og ræða við bæjarstjórann um framtíð sveitarfélagsins.
ég er annars gríðarlega þreytt, en gríðarlega spennt líka. er að [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on August 20, 2008 by misssigridur
dóttirin heldur greinilega kúlinu hjá pabba sínum. eitursvöl bara.
vildi að ég gæti sýnt ykkur snyrtilegheitin á skrifborðinu mínu, sem þýðir bara eitt, að ég er búin (að mestu) að ganga frá greinum og bókum. sem þýðir svo að ritgerðin er að komast á koppinn loksins.
annars er ég að fara til undralandsins í október, en það á [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on August 19, 2008 by misssigridur
rassinn á mér er soðinn við bévítans stólinn og það te-gutlar í maganum á mér. ég er komin með sigg á alla fingur og króníska þörf fyrir að taka afrit af lokapappírnum. nú má koma eldgos, flóðalda, kjarnorkusprengja, fellibylur og annars konar náttúruhamfarir, pappírinn er vandlega geymdur í gagnageymslu google. hundruð eintök á mismunandi vinnslustigi.
ég [...]
Filed under: Uncategorized | 5 Comments »
Posted on August 16, 2008 by misssigridur
það urðu miklir fagnaðarfundir á ásbrekkunni í kvöld þegar heimasætan snéri aftur úr hveragerðissveit. fleiri myndir á píkasa.
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on August 16, 2008 by misssigridur
hér er litla svissneska barnið sem vaknaði sex sinnum í nótt og skilur eftir sig örþreyttan móðurgarm. og svo undrar fólk sig á því af hverju ég er ekki fyrir lifandi löngu búin með þennan masterspappír? ég fullyrði það að ég hef ekki sofið síðan í júní á síðasta ári.
annars var 1sti vinnudagurinn alveg bærilegur [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on August 14, 2008 by misssigridur
núverandi litla ljóta leyndarmálið mitt er að ég sit við skrifborðið mitt og borða krukku af gerber eplamauki. það var annað hvort það eða ráðast fjálglega á fimmhundruðgramma m&m pokann sem leynist í stóruskúffunni (gjöf). samt er ég með samviskubit. maður rænir ekki mat af sér minni máttar. en gott er maukið. og nammipúkanum á [...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on August 13, 2008 by misssigridur
meinaða. er ekki að meika þetta góðviðri öllu lengur. ég hýrist inni á offissi meðan betri helmingurinn óverdósar af d-vítamíni og melatóníni úti á palli/garði/golfvelli. en alveg er mér sama um alla sólbrúnku. í alvöru. eða þannig.
gormurinn fór í hálfsársskoðun í morgun og er við sama heygarðshornið, pínutítla og frisbífis. alltof létt og þarf að mæta í [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on August 10, 2008 by misssigridur
heyrðu nú mig. gabríelan var búin að fyrirskipa að tekið skyldi þátt í lottó í gærdeginum, en slíkt hefur ekki verið vaninn á þessu heimili. vinninginn átti nefnilega að nota í stærra hús með risagarði sem gæti hýst nokkra hesta eða svo, fína bíla, rómantíska helgarferð fyrir okkur gunnl og síðan sólarlandaferð í síðhaustinu; tvær [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »