Posted on October 31, 2008 by misssigridur
gabríelan fer vikulega á kfum&k-fundi og líkar vel. núna syngur hún t.d. oft og iðullega “pitsahöt, pítsahöt, kentökkí fræd tjikken og pítsa hött, makkdónalds, makkdónalds, pítsahöt og ken….”, grínlaust. svo kom hún heim um daginn með súkkulaðikúlur sem hún bakaði eftir uppskrift úr biblíunni.
ég hristist af hlátri.
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on October 30, 2008 by misssigridur
þegar veröldin er bleksvört og framtíðin óráðin á maður að gera eitthvað sem léttir lund og anda, eins og að skella sér á landsleik kvenna í fótbolta! þvílíkar hetjur og frábærar fyrirmyndir. gabríelan öskraði svo mikið að það leið næstum yfir hana, og áttaði sig ekki á helfrosnum tám og fingrum fyrr en að leik [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on October 19, 2008 by misssigridur
er ekki alveg að átta mig á þessari borg? fór í “sentralið” en sá bara nokkur forljót háhýsi í einni kippu og mannauð strætin. eyddi óhóflegum tíma inni í target og græddi aðeins á því valkvíða. gekk um í leiðslu og velti því fyrir mér af hverju maður á að þurfa að velja á milli [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on October 16, 2008 by misssigridur
operation dalur var hrundið í framkvæmd fyrr í dag en þá voru nýtt vafasöm bankasambönd til þess að leysa út sjaldséðan gjaldmiðil. til þess þurfti ég að leggja fé inn á úreltan reikning í gjaldþrota banka og læðast síðan bakdyramegin á bækistöðvum bankans á öðrum stað, þar sem ég fékk góssið í hendurnar í hvítu [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on October 15, 2008 by misssigridur
sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.
annars er slökkt á heilanum á mér í augnablikinu, eða hann utan þjónustusvæðis. þarf þó að hrökkva í gírinn því það er blak í kvöldinu og vísast þarf ég að grafa upp ferðatöskur því ameríkan kallar á föstudeginum.
annars var rauðhausinn í vigtun og sprautu í morgun og allt í orden. [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
Posted on October 8, 2008 by misssigridur
hér eru fallegu gullmolarnir mínir. annar í stuði en rauðhausinn pestarsjúkur með fjörutíu gráðu hita en brosir í gegnum tárin.
spengilegasta daman á nesinu.
einfaldlega ómótstæðileg :).
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on October 5, 2008 by misssigridur
yndislegur sunnudagsmorgunn. gufan á, kaffi í bollanum, bóndinn í skólanum og heimasæturnar sofa á sínu græna. klukkan er að ganga tíu og enn sé ég bara fugla á hreyfingu. þetta er það besta við nesið. kyrrðin.
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on October 4, 2008 by misssigridur
meðan ég man, ég einfaldlega verð að viðra það við alla mína kæru lesendur að dagbjörtust svaf alla nóttina nánast! heilinn á mér er því skýr sem kýr og ekki fjarri því að ég hendi mér núna í sturtu og setji upp bros dagsins.
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on October 4, 2008 by misssigridur
það er eiginlega ógjörningur að hugsa um efnahagsþrengingar þegar íslandið er fallegast og sólbjart og esjan gnæfir tignarleg yfir borgarþegna sína. og aumingjans forkólfarnir sem fundast nú stíft og ætla sér að leysa ráðgátuna á helginni. ekki fá þeir að sleikja sólina eins og snæfellsjökullinn sem veifar mér úr eldhúsglugganum. og nú munu kannski lífeyrissjóðirnir [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on October 2, 2008 by misssigridur
krúttlegustu feðginin í morgunsárinu
hádegisskóflað í kálfinn
svo kom særún í heimsókn
og í kvöldinu snjóaði á heimasætuna
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »