yndislegasta og glaðværasta hafnarfjarðarmærin er EINS árs í dag! meiri ljúfu er erfitt að finna á þessu fróni blessuðu og hún er gleðigjafi gríðarmikill. innilega til lukku, elskuleg særún ósk!

það fer ekki mikið fyrir skrifgleðinni þessa dagana? enda nóg að gera svo sem. sit lítið fyrir framan lappann og er að vasast í mörgum verkefnum. heimilisfólkið er risið úr pestinni ógurlegu og farið að sinna sínu og allt gengur sinn vanagang. það fer að styttast í útskriftarferð, sem var reyndar í hættu á tímabili [...]