Posted on January 21, 2009 by misssigridur
afskaplega fallegar dætur á fallegum sunnudegi. fundum einu brekkuna á nesinu og renndum okkur brot úr degi.
annars allt bara það sama. prófavika og únglingarnir að gera mig brjálaða. kvarta og kveina í sífellu, kalla mig óréttláta og stranga, fasista og skólann fangelsi. þung samfélagsaldan er að berast inn í skólana og óróleikinn vomar yfir og [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on January 8, 2009 by misssigridur
ég velti í ákafa fyrir mér ástandinu í ísrael/palestínu, en því meira sem ég rembist því minna skil ég. fyrir ekki svo löngu síðan ræddi ég við víðförula konu og vitra sem hafði fyrir nokkrum misserum ferðast um þessi ríki, og nærliggjandi lönd. sögurnar voru óskemmtilegar og sögðu af alvarlegum og augljósum ofsóknum ísraelsmanna, óþolandi [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on January 8, 2009 by misssigridur
mér þykir einkar vænt um þessa mynd af dagbjörtu því hún segir svo margt um persónuleika hennar. hún ætlar sér að verða allsendis ólík rólegri systur sinni og lángtum meiri grallari. hasarinn hófst strax í móðurkviði og það sér engan veginn fyrir endann á honum. bara tilhlökkunarefni!
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on January 8, 2009 by misssigridur
seinnitíðin og meðfylgjandi barnsburður hafa gert mig einkennilega meyra. svo mjög að ég fór skyndilega að hágráta yfir skáldsögu dagsins, jafnvel þótt sögupersónan hafi nú bara úlniðsbrotnað á fjallgöngu. ég ætti því kannski að fara að greina nemendum mínum frá ástandinu, svo þeir fárist nú ekki yfir því ef ég missi mig yfir kennimyndum sagna, [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on January 7, 2009 by misssigridur
ég hef lengi vitað að sjónvarpslaus veröld er betri veröld. ég var orðin ágætlega laus við sjónvarpsfíknina á brighton stræti, en svo datt maður í sukkið aftur og ég eyði samviskubitslaust kvöldunum í hraðsoðið sull sem engum er hollt, að undanskildum þáttunum sem ég horfi stundum á á history channel og gera mig ögn vitrari [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on January 2, 2009 by misssigridur
elskuleg og yndisfríð tengdamóðir mín á afmæli í dag, rétt skriðin yfir sextugt þessi skvísa. nú getur hún státað sig af því að vera orðin ein af “the golden girls” og líkist þá kannski einna helst henni sophiu, sem mig minnir að hafi verið indælis kona en hæfilega óþekk í bland :).
risavaxnar hamingjuóskir!
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »