Posted on February 27, 2009 by misssigridur
dóran leit við áðan og færði dagbj þennan líka fallega afmælispakka – þúsund þakkir! við fórum svo að ræða um peninga (talk of the town) og ég sagðist ætla að færa heimilisbókhald í mars því ég vissi í raun fátt um það í hvað peningarnir mínir færu. hún benti mér þá á þetta bókhaldsforrit, http://www.pearbudget.com, [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on February 26, 2009 by misssigridur
finnst þér blúndur fallegar? hugleiðirðu að hressa ögn upp á heimilið? auglýsi eftir meðkaupendum að þessum yndisfagra stensli sem má nota á vegg og gólf, allt eftir behag. hann kostar nefnilega tvöhundruð bukkarús sem samræmist hvorki kennaralaunum né tíðarandanum almennt.
:).
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on February 26, 2009 by misssigridur
það er frúgal ungfrú sem talar í morgunsárinu. búin að keyra ektamanninn í vinnu og búðast með rauðhausnum, búin að fá mér ljómandi gott rúnstykki og tebolla. búin að íhuga það að þrífa kofann í vetrarfríinu en hef enn ekki tekið afstöðu til þess aðkallandi máls. búin að rífa í mig moggann og fréttablaðið og [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on February 25, 2009 by misssigridur
einsársafmælismyndir komnar á píkasað.
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on February 25, 2009 by misssigridur
þarna má sjá heimasætuna í líki geimgellu, en þess verður að geta að ég saumaði (já, í saumavél) silfurdressið sem barnið klæðist. hreint alveg ótrúlegt afrek, og mikið afskaplega sem mér leiddist gjörningurinn!
en bara, gleðilegan öskudag.
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
Posted on February 23, 2009 by misssigridur
viðburðarríkur dagur að baki. fór í mína fyrstu mæðraskoðun í þessari lotu, á 24. viku og komst þá að því að “gamla” ljósan mín hafði gefið mig upp á bátinn. sú nýja lofar hins vegar mjög góðu og við ræddum ýmislegt gagnlegt og nytsamlegt. hún leggur til vicks og piparmyntugufu fyrir stíflurnar og meðgöngusund vegna [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on February 21, 2009 by misssigridur
what thing is love? for sure love is a thing, it is a prick, it is a sting, it is a pretty, pretty thing…
valentínusarkonudagshitt&þetta fær mig til að hugsa. og meta. ég fékk morgunmatinn í rúmið á elskendadaginn og gladdist mjög því ég vissi sem var að gunnl var alls ómeðvitaður um þennan ástarmerkta dag á [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on February 19, 2009 by misssigridur
það er blámi í minni núna. veit ekki alveg af hverju. kannski er vinnuálagið loks að bíta í rassinn á mér (og sinnið), kannski er ég bara aum og svefnvana. það hjálpaði heldur ekki viðkvæmu geðinu þegar kær vinkona leit við áðan og fékk lánaðan fallegan kjól hjá mér frá því á kjörþyngdar-tímabilinu… verði henni [...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on February 17, 2009 by misssigridur
snúður og snælda, rauðhaus og gleðigjafinn eilífi, er 1 ÁRS Í DAG! við sungum minnst þrjár útgáfur af afmælissöngnum í morgun og klappaði dagbj og brosti hringinn og trallaði með. yndisleg alltaf og alltaf!
Filed under: Uncategorized | 9 Comments »
Posted on February 15, 2009 by misssigridur
það sér fyrir endann á krúttlegustu helginni, og heldur tíðindalausri líka. sem er ágætis tilbreyting. fékk stöllurnar lí og kolbr til mín í semí-dinner á föstudaginn og ég hefði svo mikið viljað töfra fram dýrindissúsjí eða eitthvað álíka og kókoskrembrúle í desert, en nú brennur svo við að ungfrúin er farin að glíma við árans meðgöngukvilla og [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »