Posted on March 28, 2009 by misssigridur
skottið fór með pabba sínum á rúntinn í dag, svona til að hvíla gleiða og pínda móður (sem leið annars bara þokkalega), og var förinni m.a. heitið í júróprís og bíkó og þessháttar sjoppur. og hvað haldiði að hafi skilað sér með heim? nema þessi líka fíni plastkaggi, sem féll svona líka vel í kramið. [...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
Posted on March 27, 2009 by misssigridur
þá er enn og aftur verið að samnýta mælistiku á 15 ára nemendur hvaðanæva úr veröldinni og kanna hversu vel (eða illa) skólinn undirbýr þau fyrir lífið. mælistikan heitir auðvitað písa og er gerð á vegum oecd, og því miður hafa íslensk ungmenni gjarnan raðað sér á miðjan lista og þykir það miður og varla við hæfi [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on March 26, 2009 by misssigridur
fallegustu baðskvísurnar…
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on March 25, 2009 by misssigridur
það eru áhugaverðar peningapælingar í gangi í hausnum á mér. ég er nefnilega búin að skrá þennan mánuðinn hverja einustu krónu sem fer út af reikningnum hjá mér og það er gaman að sjá neyslumynstrið, sem hefur verið tiltölulega óþekkt stærð hingað til. það kemur m.a. í ljós að ég eyði meira en 80þ í [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on March 21, 2009 by misssigridur
stína einstæðingur talar frá nesinu fagra. ektamaður og heimasæta í sitthvorum sumarbústaðnum og við dagbjört bara að dingla okkur heima við, ásamt því hálfbakaða. átti m.a.s. góða nótt og svaf óttalega rótt meðan ungviðið gerði tilraunir til að veiða móðurgarminn inn til sín með gráti og ögn væli, en án árangurs. enda kom það á daginn, [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on March 20, 2009 by misssigridur
nýtt albúm á píkasanu / new album on picasa…
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on March 20, 2009 by misssigridur
heimasætan náði að handleggsbrjóta sig í íþróttum í gær. [mér urðu skyndilega minnisstæð orð góðrar konu sem sagði einu sinni að maður hefði val um tvennt, að lifa heilbrigðu lífi eða stunda íþróttir.]
en daman sú ber sig vel og skartar nú gifsi frá öxl að fingrum. og í tilefni dagsins brá hún sér í sumarbústað [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on March 18, 2009 by misssigridur
tíminn flýgur áfram, og teymir mig á eftir sér. Og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer…
það er nefnilega farið að glitta í apríl blessaðan og þá er bara kortér í vorið. tilveran er annars heldur hverful þessa dagana. í aðra röndina er ég fatlað fól með stíflað nef, tog- og bakverki [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on March 3, 2009 by misssigridur
hér er fröken frekjuskarð í baði og skemmtir sér augljóslega konunglega. kallar nánast daglega eftir dinner, ba! ba! ba! og best er að abba ba, sem er að labba (með stuðningi) inn á baðherbergi.
annars var ég heima í dag, örþreytt eftir nóttina og lúin í grind, og samviskubitið er að fara með mig. sérstaklega að hafa [...]
Filed under: Uncategorized | 7 Comments »