Posted on May 29, 2009 by misssigridur
fyrir óteljandi og einstaklega góðar afmæliskveðjur! ekki veitti af, því dagurinn var sirkabát hörmung, og rúmlega það :). fór í vinnuna í morgun og vann til eitt, með tilheyrandi grindarverkjum. kom heim, glímdi við harðlífi hjá rauðhausnum og loks þegar sú stutta var komin í ró um fjögurleytið gat ég loksins sest niður fyrir framan tölvuna með [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on May 26, 2009 by misssigridur
lillan mín er tólf ára í dag! yndislegri manneskja er vandfundin og víst er að hún hefur glatt móðurhjartað ávallt og sífellt síðan hún fyrst leit dagsins ljós. ég efast ekki um að dagurinn verði henni góður því framundan er sjoppíngsprí í kringlunni þar sem daman ætlar að splæsa á sig hinu og þessu fyrir fjársjóðinn [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on May 23, 2009 by misssigridur
…enda er ég bæði orku- og andlaus einhvern veginn. vildi bara láta vita að ég er “formlega” hætt í vinnunni, en samt ekki alveg, á eftir að keyra tvö lokapróf og fara yfir og tilheyrandi. taka á móti nokkrum ritgerðum frá útilegukindum sem skila of seint. ætla samt að taka því rólega, sofna aftur þegar [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on May 18, 2009 by misssigridur
heimilismýsnar eru báðar veikar, og sú stutta með ælupest/hita. og úti skín sólin sem aldrei fyrr og pallurinn nýblómumprýddi er funheitur og býður upp á ískalt límónaði og vatnsmelónu. en ónei, það er ekki flóarfriður fyrir pestarstelpunum og ekki fer ég að sólbaka krílið sem kúrir sem fastast í hálsakotinu og stynur þungan af vanlíðan. [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
Posted on May 16, 2009 by misssigridur
í dag er bara-að-dúllast-dagur, sem þýðir bara rólegheit og fuglasöng. þurftum reyndar aðeins að skreppa á læknavaktina til að láta kíkja á leiðinlegan bleiubruna hjá snúllu, og það var í fyrsta sinn sem ég gekk inn og út af tómri læknastofu. en hér eru nokkrar sumarmyndir, þar af ein af heimasætunni á nýja hjólinu sem [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on May 14, 2009 by misssigridur
blóðprufa föstudagsins afhjúpaði lélegan blóðbúskap ungfrúarinnar og hringdi því ljósan í mig á mánudagsmorgun og ráðlagði tvöfalda járninntöku með það sama, c-vítamínát og trönuberjasafadrykkju. sem ég hlýddi auðvitað, og hentist samviskusöm í heilsubúðina og kom klyfjuð til baka. í tvo daga píndi ég oní mig þennan “heilsukokteil” og er svo búin að vera nánast fárveik [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on May 9, 2009 by misssigridur
ókei, engar sérstakar fréttir, en þó. fékk falleinkunn hjá ljósunni í gær, átti raunar hálf-kostulegt samtal við frúnna, því hún sá sem var að það þyrfti bara strá til að fella mig endanlega, svona skemmtilega baugótt og þreytuleg, kjagandi eins og hölt önd, líka andlaus með öllu. og ég sem var að reyna að bera [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on May 6, 2009 by misssigridur
hún lína-mín er afmælisbarn þessa dags, enda dagurinn búinn að vera yndislegur; sólríkur og arfablíður. ég og mínir nærbúendur sendum stúlkunni risavaxnar afmælisóskir, sé þig fljótt, vinkona kær!
kooooooooooooooooossar.
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on May 4, 2009 by misssigridur
með hjálp másunnar og youtube tókst mér að föndra þennan forláta kjól á miðjuna á tveimur dögum. og þetta var líka langtum auðveldara en ég hélt? nú standa mér allir prjónavegir færir. ég set mynd af skvísinu þegar dressið er þornað og daman komin í það.
annars er fátt að frétta. þarf að hendast í ótal [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
Posted on May 2, 2009 by misssigridur