lífið rembist við að hafa sinn vanagang, með tilbrigðum þó. dagbjört er eilítið áttavillt en smælkið nærist og sefur bara út í eitt. heimasætan bíður spennt eftir því að geta kynnt nýju systurina fyrir vinkonunum, húsfaðirinn notaði rólegu klukkustundina áðan í garðslátt og ég? svona næstum því eiturhress. skurðurinn háir mér lítið og eftir að hafa [...]

hér er svo loks lítil gunnlaugsdóttir…

yndisfríð og ljúf sem engill! fædd 24. júní kl. 05:59, rétt rúmar 16 merkur og 52 sentímetrar á lengdina. dáð og elskuð frá fyrstu stundu, enda algjörlega ómótstæðileg!
og kannski ég láti þá fæðingasöguna fylgja með, og hleyp þá á stiklum? sem sé, eftir að hafa blótað ermprjóninum fór ég að finna fyrir alvöru verkjum og [...]

loooooksins!

við það að blóta rækilega prjónaræksni kvöldsins fór ég að finna fyrir öðruvísi samdráttum… og vitimenn, ungfrúin skrifar nú á milli hríða. er þó ekki enn farin upp á deild og er að þrjóskast við, núna eru um 4-5 mín á milli og hver hríð var í um 50 sek. þannig að…
jónsmessuprinsessan er á leiðinni!

uuu…

gunnl líkir ástandinu við biðstofu hjá tannlækni, en svo slæmt er það nú ekki. allt hefur sinn vanagang, ég horfi á dansdramað sem aldrei fyrr og er nokkurn veginn búin að sætta mig við að daman kemur þegar hún er tilbúin. fékk samt kvíðafiðring þegar mér barst sms í morgunsárinu frá kvennadeildinni, en þar var [...]

hitti ljósuna í morgun og hún náði vísast að losa belginn. fann fyrir kollinum þannig að daman er komin neðar í grindina, en samt ekki alveg. skoraði 7/10 á einhverjum tilbúin-til-fæðingar-kvarða, en skorið var 5/10 á föstudaginn. er samt ekki með neina verki þannig að mér þykir nokkuð ljóst að belglosunin skilaði mér litlu. jónína [...]

ómæ! get dömpað sófanum því ég uppgötvaði – mér til svo mikillar hamingju – að ég get sofið í gabríelurúmi. þar er stíf dýna og grind sem ég get notað til þess að lyfta þungum miðhlutanum og komast fram úr. tær snilld, enda reiknaðist mér það svo að ég hefði fengið 50% betri svefn en [...]

dró másuna og stelpurnar á laugaveginn í dag og ætlunin var að fá sér gott kaffi og meððí. nema hvað, kaffihúsin voru langflest óbarnvæn með meiru og þau sem buðu upp á barnastóla voru kjaftfull, þannig að við hurfum frá og enduðum á ísrúnti um vesturbæinn. dagbjört fann sér annars góðan félaga í litlum hvutta [...]

ergelsi…

hitti ljósuna í morgun og til stóð m.a. að losa belginn. það reyndist ekki vera mögulegt því kollurinn á dömunni stendur hátt og þrýstir illa á leghálsinn. það eina sem ég græddi á þessari aðgerð eru aukin eymsli – sem ég mátti illa við. þannig að, það lítur ekki út fyrir fæðingu næstu daga, nema [...]

snemma beygist krókurinn…

sit hér og gæði mér á fullu risaglasi af ískurli með smá sjöávaxtasafa, í miklu uppáhaldi um þessar mundir. og það er nákvæmlega ekkert að gerast og ég er búin að slá persónulegt met í meðgöngulengd, enda hringdi ljósan áðan og undraði sig á uppátækinu. því miður hafði hún lánað unglingnum sínum bílinn, annars hefði hún brunað [...]