Posted on July 30, 2009 by misssigridur
það ríkir ógurleg gleði á ásbr enda heimasætan komin aftur í hús. dagbj hleypur um með risabros og gólar í sífellu “dabríla, sidda!” og vill að hún hlýði sér í einu og öllu. síðustu viku eyddi heimasætan í bústað í borgarfirðinum, og sneri til baka alsæl og með tvo lítra af draumasjampói, en uppsprettuna mátti víst [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on July 28, 2009 by misssigridur
flækjustig lífs míns hefur snarlega aukist og og víst er að það er enginn barnaleikur að tækla krílin tvö, heimilið og allt annað sem fylgir – og það er ennþá vísara að þúsund hlutir verða útundan. en ég er ennþá bara á grunnskólastiginu í þessu margra-barna-móðurhlutverki, og leiðin hlýtur bara að liggja upp á við. ég er [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
Posted on July 26, 2009 by misssigridur
veit ég lofaði myndum, eða að gera tilraun til þess að taka myndir af hugrúnu erlu og pósta hér, en nú geisar magakveisa á ásbrekkunni og ég því eilítið upptekin við endalaus bleiuskipti. og það er ekki laust við að örlítill hiti fylgi kveisunni, sem herjar aðallega á dagbjörtu okkar. en myndirnar munu koma – [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on July 24, 2009 by misssigridur
mér er sama hvað hver segir, mér finnst vilkó bláberjasúpa góð. var einmitt að gæða mér á súpudisk, eftir miklar vangaveltur um hvað ætti að snæða, loks þegar þögnin lagðist yfir brekkuna og næði gafst til allra hverdagslegra verka (bursta tennur, vinda sér úr náttbuxum, setja upp maskarann, borða, og já, klukkan er að ganga [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on July 18, 2009 by misssigridur
hér er miðjan að slaka á fyrir framan babyTV, sem er í eilitlu uppáhaldi þessa dagana. daman nennir þó sirkabát öllu öðru en að horfa á sjónvarpið. ég er annars í litlu skrifstuði enda nóg að gera, gabríelan brá sér í laaaangt frí til hveragerðis og húsbóndinn eflir íþróttaandann á þriggja daga golfmóti. og ég [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on July 14, 2009 by misssigridur
skemmtilegasti dagur að baki! um leið og ég var búin að pósta “geriði-það-heimsækið-mig” þá varð síminn rauðglóandi og ég lék myndarlega húsmóður allt síðdegið, eða þannig (bauð altént upp á kaffi og súkkulaðirúsínur, kommon…). móðirin kom með fallega brúna frændann (ísak) sem sneri í gær ferskur og glóðvolgur úr strandasveit, og gaf frænku sinni besta knúsið. [...]
Filed under: Uncategorized | 1 Comment »
Posted on July 14, 2009 by misssigridur
jahérnahér. áhugaverður morgunn að baki, í meira lagi. allt í einu reynir á skipulagshæfnina og geðheilsuna svo um munar, en gunnl er snúinn aftur til vinnu. eftir að útidyrahurðin lokaðist á eftir honum uppgötvaði ég að það er ekkert svo auðvelt að standa í þessu þriggja-barna-stússi, sérstaklega ekki sóló. hugrún vældi um brjóstið í fanginu [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
Posted on July 13, 2009 by misssigridur
en ég, ásamt grasblettinum mínum, runnum og blómum, óskum hér með eftir smá rigningu. og hananú.
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on July 13, 2009 by misssigridur
nýtt píkasa-albúm…
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
Posted on July 8, 2009 by misssigridur
krílið okkar þrífst afskaplega vel og kippir sér lítið upp við skarkala heimsins (þá helst framleiddur af miðjunni). sefur vært og drekkur eins og vindurinn, enda móðirin á við bezta mjólkurbú, og nytin sannarlega á við fimm beljur. og auðvitað skein sólin í tilefni 2ja vikna afmælis og heimilisfólkið var iðið við sitt, dagbjörtust hjá [...]
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »