
er óttalega föst í hausnum á mér þessa dagana, eða í nýmóðurþokunni frægu. reyni að lesa en festi bara hugann við tvær línur í einu, og bók er seinlesin þannig. er með tvær peysur á prjónunum og fimmtán önnur verkefni í hausnum og þannig vinnast verkin seint og illa. hef eiginlegar mestar áhyggjur af því núna að þurrkarinn fari að bila? fimm manna þvottastúss er nefnilega merkilegur ári og það er eins og innihaldið í körfunum endurnýi sig átómatískt og af frumstæðri sjálfbærni.
hugrún erla er draumastelpa og svolítið svona standby í fjölskyldunni, jaðarmeðlimur ennþá. aðalhasarinn er í kringum miðjuna, og svo er fáránlega mikið að gera hjá stóru-skvís, þannig að sú yngsta flýtur með og tekur lífinu með stakri ró. bíður síns tíma. ég er annars alltof léleg með myndavélina, eins undarlegt og það hljómar. manni finnst einhvern veginn að það þurfi að mynda þessi kríli daglega, og oft á dag? eins og maður sé að missa af einhverjum dýrmætum mómentum sem aldrei komi aftur? sem er kannski sannleikur – ég horfi á dagbjörtu og skil ekki hvert tíminn flýgur?
ég er svo ókei. dáldið löt, stirð í grind og aum í skurði. kolbrún vinkona heldur eflaust að ég sé spítalamatur því ungfrúin sú hefur gott lag á því að birtast þegar hárið á mér er í messi og ég í öfugum náttkjólnum – um miðjan dag jafnvel. en það er vel, og víst styrkur að þora að mæta til dyranna eins og maður er klæddur í það og það skiptið. ómáluð líka. ótilhöfð. samkennarar mínir birtust hérna líka ótilkynntir um daginn, og sem betur fer var ég nú búin að tannbursta, og vippast í buxur undir náttkjólinn. en það er kannski verra þegar föðursystur og bræður láta sjá sig við þessar frjálslegu aðstæður, svo nú er það einsett markmið að fara að fullu á fætur fyrir tíu, að morgni þá.
ég er svo búin að fá lánaða tvíburakerru (!) og get því gengið úti meðan gunnl hýrist í vinnunni eftir orlof, en það stuttist ískyggilega í endalok þess. þá á drengur eftir sumarfrí, og nauðungafrí (10 daga ólaunað orlof í boði fyrirtækisins), en óvíst er hvernig því verður háttað. eina sem er planað er vikubústaðarferð í ágústlok.
en rebus vinur minn kallar, og hans edínborgísku morðævintýri. ætla að hjúfra mig snöggvast að ljúfasta manninum.
Filed under: Uncategorized
tjaaa spítalamatur, neiiiii :) en ég læri af þessu að hringja á undan mér hnjehnjehnje ;)
sjálf varð ég fyrir miklum vonbrigðum, leitaði að Rebus á fjölvarpinu mínu um kvöldið en fann ekki :( – greinilegt að ekki eru allar stöðvar þær sömu á vodafone fjölvarpi og símans.
knús og koss
rebus var á dr1… og þú þarft ekki að hringja á undan þér :).
sí.