

krílið okkar þrífst afskaplega vel og kippir sér lítið upp við skarkala heimsins (þá helst framleiddur af miðjunni). sefur vært og drekkur eins og vindurinn, enda móðirin á við bezta mjólkurbú, og nytin sannarlega á við fimm beljur. og auðvitað skein sólin í tilefni 2ja vikna afmælis og heimilisfólkið var iðið við sitt, dagbjörtust hjá ömmu erlu framað hádegi meðan gunnl nærði andann á setbergsvellinum, gabríelan er í hveragerðinu að spóka sig, svona líka nýklippt og sæt, og ég? kampakát og næstum því alheil finnst mér. splæsti m.a.s. í íslensk jarðarber áðan, af tómri hamingju, þótt stykkið kostaði sirkabát hundraðkallinn.
hér er svo ein krúttleg mynd af dagbjörtu sem var tekin á pallinum í dag – þar sem hún lék sér við að sulla!

Filed under: Uncategorized
precious!
Ægilega flott sú nýjasta :o)
Til hamingju með ríkidæmið Sigga mín!
Knús
Ellen
takktakk, elsku ellen :)