já, pappírinn yfirgaf ásbrekkuna um sex:þrjátíu í morgun og ég náði því að kúra í sirkabát hálftíma. er samt furðulega hress, og get greinilega ennþá tekið svona all-nighter. dagbj fór svo í aðlögun í morgun, og vorum við klukkutíma við leik og störf. ég verð að segja, að þetta er nú ekki norðurberg… mér fannst [...]

garg, sniff, arg, fjárinn, ansans! ég sit enn við lestur og klukkan er að ganga fimm! nýr dagur, sama ruglið? og ég sem hélt að toefl-próf hefði eitthvað með inngöngu í breska háskóla að gera? hvurnig má þetta vera?
til að halda geðheilsunni ákvað ég að lesa ritgerðina afturábak, þ.e., lesa frá aftasta kafla og upp. [...]

fjúh, komin heim í heiðardalinn. sé að bóndinn handan við götuna er farinn að bagga í svörtu, sem er ósmart og mér ekki að skapi. hálfgert eins og svartar bjöllur á fallegu landslaginu. svo stendur gult vinnutæki uppi á eina hól bæjarins, hótandi, grimmilegt. mig grunar að nú fái hann að fjúka og víki þá [...]

jahérnahér, litli boltinn er orðinn rúmlega sexoghálft kíló! ljósan kom við í morgun og hváði yfir mjólkurbúskap mínum, sem er fyrsta flokks og engin undanrenna. svona til gamans má geta þess að dagbjört náði þessari þyngd heilla sex mánaða…
hún hugrún er bara æði!

sælinú, er frekar óvirk þessa dagana enda svosem nóg að gera. er enn að læra á margra-barna umönnun og fínpússningu ólíkra þarfa, en þetta er ógurlega gaman og gefandi allt saman. lausar mínútur nota ég í prófarkalestur, og þó veit ég ekki hvurn fjandann ég var að hugsa þegar ég tók að mér þessar blessuðu [...]

það er ljóst að hugrún erla tekur tímasetningar alvarlega, enda var hún ekki fyrr orðin sex vikna að hún byrjaði að taka út sex vikna vaxtakippinn sinn (eins og ég sagði örstutt frá í gær). og þvílíkt og annað eins, hún er eins og glorsoltinn úlfur og vill helst bara vera stöðugt á brjóstinu. gaf [...]

hér eru lillamús og ísak töffari við hliðsfjöru hér í grenndinni, en fleiri myndir úr ævintýraferð þeirra og gabríelu er að finna á píkasa.
annars allt rólegt, dagarnir líða á lúsarhraða og hugrún er engill og þær systur allar. þær minnstu orðnar svolítið sinkróníseraðar varðandi dagsrútínuna, sem er vel. líklegast er vaxtakippur í gangi hjá smælkinu, [...]

krúttin mín á sólríkum laugardegi