fór með smælkið í 3mán skoðun í morgun, og mæmæ, daman er bara yndislegust. vóg heil átta kíló, en það á þó ekki að vera áhyggjuefni þar sem hún er eingöngu á brjósti. hress, kát og spræk!
annars allt fínt í fréttum. tinna áfram þjóðleikhússtjóri? tja, eitthvað eiga menn eftir að bítast um þá ákvörðun menntamálaráðherra. [...]

sko mína. farin að prjóna eins og vindurinn (5 m/sek þá). er eilítið að finna mig ennþá í kúnstinni, og hef því prjónað sumar flíkur tvisvar, jafnvel þrisvar – allt til að ná réttri prjónfestu og skoða hina og þessa tækni. nú tel ég mig reiðubúna í að fara á næsta prjónastig, og á to-do [...]

punktafærsla

er að verða búin með vesti nr2, ákvað að breyta því pínu og er að íhuga smá saumaskap í prjónefnið
gabríelan brillerar í skólanum að vanda, er stærðfræðiséní og var í morgun flutt í unglingaensku (8. – 9. bekkjarefni)
gabríelan er núna að baka sjónvarpsköku
gabríelan mun æfa fótboltann fimm sinnum í viku í vetur, þ.a. er ein [...]

það er ástæða fyrir því að ég tjái mig lítið um kreppu, efnahagsvanda heimila og fyrirtækja, gengið, krónuna, esb, og þess háttar skemmtilegheit; ég myndi þá endanlega ganga af göflunum. þessi vettvangur er nefnilega dálítið öryggis-zone fyrir eigandann, hér get ég leikið fyrirmyndar húsmóður og margra-barna-mömmu, tiltölulega óupptrekta þá. oftast er ég brosandi bakvið stafina, [...]

ég opna augun, árans! klukkan er að verða átta og enginn vaknaður. hendist fram úr beddanum inni hjá stelpunum, hafði sofnað þar í öllum fötunum og var ísköld (dagbj átti erfitt gærkvöld) og inn til heimasætunnar, útskýrði fyrir henni örstutt að nú yrði hún að rísa eins og sólin, bara hraðar, í föt, borða, bursta [...]

hér er svo nýjasta projektið, læt rauðhaus máta að verki loknu og sýni ykkur [líka bláu léttlopapeysuna, en elsku ólöf, dórumamma, er að henda í hana rennilás, yndislegust].
 
verð að segja að það er stuð að prjóna ofan frá, önnur stemming. hér er svo hjálparsíða fyrir óvant prjónafólk, algjörlega ómissandi. http://www.knittinghelp.com/
[vestið komið á koppinn, og eilítið [...]

nokkrar myndir handa ömmunum

stundum kalla ég dagbjörtu russell, af augljósum ástæðum.
annars allt ljómandi bara, prjónið fyllir mig hamingju og um daginn keypti ég mér mína fyrstu online prjónauppskrift og vinn nú eins og vindurinn við að skapa vesti á úfna trendsetterinn sem er prjónað frá hálsi og niður, ákaflega skemmtilegt og gefandi. gunnl skilur þetta ekki, jafnvel þótt [...]

ég hét sjálfri mér því

að halda þessum pistlum mínum saklausum af pólitísku röfli og ræpu, en ég verð samt að spyrja:

HVAR ER JÓHANNA?

stolt af litla-bró!

þetta eru án efa skemmtilegustu verktakarnir á íslandi í dag. leikandi og syngjandi, og vinna verk sín með stakri prýði.
[frá vinstri: gummi (frændi), fúsi, gessi (bestibró) og siggi]