eittkommasex niður. það verður flaggað á ásbrekkunni í dag.
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
eittkommasex niður. það verður flaggað á ásbrekkunni í dag.
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
[ life's a game but it's not fair ] það er vont en satt að ég er ekkert sérstaklega góð í blakinu? rembist eins og rjúpan við staurinn en geri mistök, og í anda hópíþróttanna líður allt liðið fyrir klaufaskapinn. [ i break the rules so i don't care ] og nýliðinn fær stundum að kenna á því, stundum [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
[ ] stundum líður mér eins og fiski í fiskabúri. ég syndi um skálina, allan daginn, alltaf. sama umhverfið, sami matur. sömu börnin sem horfa á mig. ég syndi í hringi. [ ]
[ ] og þannig er móðurhlutverkið. allt í einu virðast tækifærin glötuð, þessi óvæntu. sumir hlutir hætta að bjóðast og aðrir líta dagsins ljós. oft [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
heitt á föstudegi, kornflex, morgunverður sigurvegaranna, mynd af systrunum í gærkvöldinu [önnur að teikna, hin á facebook], hönnun heimasætunnar sem ég kýs að kalla vitana þrjá. góður tebolli, fréttablaðið, prjóna-pínu, þrífa eldhússökkla og hengja upp útiljósaseríu, knúsa hugrúnu, daðra við manninn minn á googletalk, taka á móti gabríelu sem hljóp heim úr frímínútum til að láta mömmu [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
yndisfríð hitti doktorinn í morgun og fékk aðra sprautuna sína. “smælkið” vegur nú níukommasex kíló og nær bráðum í skottið á stóru systur sem vegur rétt um tíu, sextán mánuðum eldri! auðvitað er hún stærri en meðalbarn, en nær þó ekki að skáka stærstu systurinni sem um tíma mældist ekki á staðlinum sem notaður er [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
maðurlifandi. prjónaði fram á nótt og hugsaði með mér að ég gæti þá bara fengið mér morgunkríu með hugrúnu, en barnið er eins og á tíunda tvöföldum espressó, spriklandi, hlæjandi, brosandi, hjalandi, talandi, knúsandi og kyssandi, og svefn dagsins telur í mínútum, ekki klukkustundum! ég er óskaplega þreytt, og útslefuð eftir skemmtikraftinn litla; búin að [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
í miðri prjónakrísu [er hlaupin á vegg með gabríelukjól, en vonandi leysist úr því von bráðar] uppgötva ég yarn bombing, sem er í grundvallaratriðum prjónað graffití. og hverjir héldu að það væri hallærislegt að prjóna? það er eitthvað heillandi við það að skreyta umhverfi sitt á þennan hátt, þetta vita t.d. mh-ingar mætavel en áratugagamall [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
krúttleg helgi að baki, en maður lifandi hvað við vorum öll þreytt við heimkomuna! sváfum líka eins og steinar í nótt. gabríelan er annars enn að glíma við magapestina hvimleiðu og ég ætla því fram núna og reyna að pína vökva ofan í krakkann.
en kristófer guðni súpersæti varð heilla fjögurra ára í gærdeginum og fengu [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
er stungin af í sveitasælu borgarfjarðarins með hele familíen. er annars komin á rembingsstigið með gabríelukjól, sjáiði bara?
góðar helgarstundir, lesendur mínir góðir.
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »