
það er miður gæfulegt ástandið á okkur mæðgum, en misjafnt þó. allar svona leiðinlega kvefaðar, og ég líklega sýnu mest. höldum samt dampi, og ég stefni ótrauð á blakæfingu kvöldsins. kannski hjálpa hlaupin og hoppin til við að hrista kvefdoðann úr hausnum á mér. er svo án bragð- og lyktarskyns, og það er óneitanlega dauf veröld.
gabríelan er svo í vetrarfríi fram á mánudag, og er yndisleg aðstoðarkona mín og gulls ígildi.
hér eru svo myndir af baðferð gærkvöldsins. dagbjört var fúl yfir að missa balann til systur sinnar, sem skemmti sér konunglega þar sem hún lá í grunnu vatninu og spriklaði sem mest hún mátti.