
ákvað að nýta kvefið og eymdina í prjónaskap og skapaði þennan fyrsta vettling minn á hálftíma áðan. ætlaður dagbjörtu, en eitthvað hafa börn til forna verið fingralöng því hann passar á gabríelu og ég studdist við uppskrift úr hinni sígildu kennslubók á prjónunum, og er hún ætluð 2-3 ára.
núna kúri ég því sitjandi undir heitri sænginni, og planlegg að prjóna tvo vettlinga í einu á 100cm langan hringprjón, með magic loop þá. óstöðvandi bara, þrátt fyrir hausverk og hor.
annars hef ég það alveg ljómandi, takk fyrir…