dröslaði mér í blakið í gærkvöldi, þrátt fyrir þungan haus og einhverjar kommur. var með bakköpp-plan að stinga bara af ef æfingin yrði of erfið fyrir semíveika ungfrú, en einhvern veginn náði ég að þrauka í tvo tíma, blakast og taka 260 magaæfingar, 40 armbeygjur, hoppa eins og froskur, ganga eins og kónguló, smassa og verjast, og hlaupa þessi líka ósköpin. bjóst því allt eins við að kvefið myndi endanlega gleypa mig, en ég held þó haus og uppgötvaði áðan, mér til mikillar ánægju, að ég fann smá bragð af teinu mínu. sem er bara eins gott því karlotta ætlar að dæna með mér í hádeginu.
prjónaði annars vettlinga eins og vindurinn í gær og er farin að geta prjónað þá blint, og sérsniðið þá að höndum miðjunnar. voðagaman.
Þú ert að verða prjónastjarna!
Nú fer ég að koma og fá kaffisopa frá ungfrúnni á nesinu, og meðlætið verður dýrindis prjóna-ráð og innblástur :)
kíktu hvenær sem er!
Ég fékk þvílíka prjóna-inspírasjón eftir að hafa fylgst með þessu bloggi í smá tíma og fyrsta verkefni er lokið, litlir ullarsokkar á Gunnar Berg! Kíkti síðan á prjónaþræðina sem þú ert með á síðunni og þeir eru brilliant, fann uppskrift að kraga í jólagjöf og að gamaldags vesti sem mig hefur langað að gera á Gunnar Berg. Langaði bara að segja takk!
ekkert að þakka :)