vettlingar

ó, maður lifandi. komin úr álinu og í íbenholtið, og vettlingarnir fæðast á engri stundu. knitpró er málið, svo undursamlega fallegir pinnar og mjúkir viðkomu. segir sú allra skrítnasta, en svona er þetta.

fórum með miðjuna til doktors í dag, því kvefið virðist vera að síga ofan í hana. það hafði þó ekki gerst, en við þurfum að hafa vakandi auga með ungviðinu og gæta þess að láta kíkja aftur á hana ef hún þróar með sér hita.

 

 

Leave a Reply