
hér eru englarnir mínir í morgunsárinu blessuðu. sú bjarta eldhress að vanda, og kelaði lengi við smælkið sem vex og dafnar eins og baunagrasið. yndislegar.
annars mikill hasar, því rauðhaus fékk skyndilega ælupest aðfaranótt laugardags, hurðarhúnninn datt af í herbergi heimasætunnar og svo var óvænt kökuát í afmælishátíð á laufvanginum í dag. bara eins gott að taka á því í blakinu annað kvöld? og sleppa freistingunum framvegis auðvitað.
prjónaði líka vel og lengi, og sé fram á að ná að klára Kjólinn fyrir jólin. nú eða hugrúnarskírn, sem verður um miðjan desember eða svo. sendum að lokum ástar- og stuðkveðju til hrafnhildar frænku, og jónu stínu. restina fá hinir sem þekkja okkur. ef ég ætti að biðja um óskalag yrði það líklega eitthvað með halastjörnunni.