og prjóna brugðið í píku og slétt í brugðna. dónaskapurinn skrifast á másu klúru sem kenndi mér eitt sinn muninn á sléttu og röngu í prjónaskap. en klukkuprjónn er það í þetta skiptið, og ullin blessuð yljar mér í prófyfirsetunni og minnir mig á (h)eldri dömurnar sem sátu yfir í kvennaskólaprófum í fyrndinni og aldrei handavinnulausar.
það er annars einn dæsari af verstu sort hér í stofunni. dæsarar eru sérstök manngerð, og yfirleitt karlkyns.
ég las nýlega að þeir sem dæsa/andvarpa etc. þjáist mögulega af þunglyndi. dettur í hug að ég andvarpaði aldrei eins mikið og þegar ég var að þú veist jafna mig þarna …. njóttu þín nú í köbenhán
Góða skemmtun í Köben mín kæra.
*kossar*og knús… sko frá mér til þín :)
takk sætustu, er búin að hafa það ógurlega næs, sjoppa frá mér hálft vitið auðvitað og drekka gómsætt jurtate í endurrisinni kristjaníu, þar sem gunnl keypti handa mér fallegustu jólagjöfina, heimasmíðaða eyrnalokka úr gulli&silfri. hreint ævintýri!
and and???