ég er að springa úr fersklegheitum. alveg hreint virkilega. það er ekkert sem gerir mann eins ljómandi eins og þriggja tíma nætursvefn skal ég segja ykkur!
annars er þetta svona síðasti formlegi vinnudagurinn minn fyrir hátíðarnar. búin að fara yfir allar einkunnir og á bara eftir að færa inn smá í innu, ásamt því að fínpússast. er með tvo gesti hér á offisinu, eftirlegukindur í einum áfanganum hjá mér sem komust ekki í dreifnámspróftöku á sínum tíma. kósí stemming, svona í ferskleikanum.
annars er ég orðin glerauguð, sumir vilja meina loksins. og veröldin er í fókus og sjónskekkja leiðrétt og það viðheldur auðvitað ferskleikanum. þó er eins og ég sjái heiminn ögn samanrekinn, og raunar upplifi ég mig sem minnst 20cm minni með fjögur augu en tvö. er óttalega kennslukonuleg, þótt stælleg sé líka (vill húsbóndinn meina, enda er ég nú komin í hans nærsýna flokk).
en kaubinhávn á föstudag og hugurinn ekki enn kominn út fyrir bæjarmörkin. samt, ég get væntanlega klæðst nýja fína og rándýra ryk-kjólnum mínum á laugardagskvöldið, þegar við æðstistrumpur ætlum að snæða fokdýrt og afbragðsgott japansnammi og baða okkur síðan upp úr kröpuðu hvítvíninu áður en við höldum upp á barnlaust hótelherbergið og ræðum málin með glerin á nefinu…
en klipp á morgun og ég er að gæla við stutt? ögn styttra altént?

já akkuru ekki ert hvort eð er alltaf með blessaðar spennurnar ;)