línafína sagði mér að dröslast til að byrja aftur að mala hér, og ég er að hugsa um að taka hana á orðinu (enda er hún miklu eldri og vitrari en ég). tek mig jafnvel á hér á spriklogspikflipanum því frá og með kl 19 á morgun þá verð ég í ofurátaksgírnum, því ég og á annar tugur álftesinga ætlum í keppni. og það eru peningaverðlaun í boði. sem þýðir að ég get mögulega skóflað af mér mörnum og keypt mér eitthvað fallegt fyrir. reyndar myndi mörmissirinn duga mér, enda aðalmarkmiðið í augnablikinu að komast í betra form fyrir aðalblakmótið í vestmannaeyjum í maíbyrjun, svo og að geta pæjast ögn í kanödu síðar í þeim góða mánuði.
þetta verða skemmtilegar tólf vikur og ég fæ hellings fræðslu, þótt mér líði eins og ég sé með doktorspróf í óbísetí-tengdum málefnum? og ég er keppnismanneskja að eðlisfari, svo auðvitað stefni ég á verðlaunasæti.
annars er allt gott. enginn veikur og nóg að gera!
Þú ert winner!!!
sigurvegari í gegn :). knús í hveragerði!
jei!!! gott að heyra að allir eru kátir. sjámst bráðum í kaffi?
jájá, þetta verður keppnis, tók forskot í morgun og var komin út í skokk fyrir kl. 9!
auðvita stefnirðu að því að vinna… en ekki hvað!!
Til hvers annars að vera með.
Þú rústar þessu koma svoooo. Vinkona mín vann 35 þúsund í svona keppni í des.
En hvað segirðu. Ætlarðu í Reykjavíkurmaraþon með mér í 10K í ágúst?
lína: kaffi, mjöööög bráðum. tárið á fim?
þorg: heyrðunúmig? spurning um að hraðmelta kvöldmatinn og skokkast eins og 3k í síðkvöldinu, eftir leik? vonlaust að láta þig taka eitthvað forskot! en hey, ég mæti á æfingu á fim, þú verður eitthvað að bardúsast í menningunni (en maður brennir ekkert sérstaklega mikið í leikhúsinu :)).
guðbj: heyrðu, þú mátt bóka þessa dagsetningu. spurning um að láta karlana verðlauna okkur sérstaklega ef við hlaupum 10k á undir klukkustund? súkkulaðinudd í laugum?
hahahah já hvernig væri það.
Annars held ég að súkkulaðiðnuddið færi ekki vel. eg myndi örugglega sleikja allt súkkulaðið…
En ég vil fá verðlaun….