dóttir mín miðlungurinn horfði í augun á mér áðan og sagði orðrétt: “þú ert ömurleg.” svo rölti hún til pabba síns og sagði: “þú ert ömurlegur, pabbi.” brosandi allan tímann, alls óvitandi um það sem hún var að segja? ég dáðist að henni í eina sekúndu fyrir að fara rétt með kynið á þessu óskemmtilega lýsingarorði, en svo fór ég að velta því fyrir mér hvar hún lærði svona orð? man ekki eftir því sjálf að hafa notað það upphátt nýverið, nema þá kannski í tengslum við veðrið eða stjórnlagaþingsklúður. dömunni fyrirgafst þó orðbragðið, enda fylgdu með kossar og égelskaþigknús.
annars er ég busiest. the most busiest. busiestest. á kafi í heilsutengdum efnum og er nú farin að hlaupa reglulega (á bretti) og örsjaldan úti, lyfta lóðum og enn lafi ég í ddv-inu blessuðu – fyrir löngu orðin eilífarkúnni líklega. allt gert eilítið meira af kappi en forsjá, og áðan var ég t.d. að hugsa um að ég væri farin að einblína um of á skammtímann í stað þess að horfa á heildarmyndina. komast-í-kjólinn-fyrir-jólin mentalítetið allsráðandi. en ég stefni á því að endurforrita á mér kollinn og læra að takast á við hlutina hægt og rólega, og örugglega. ekki í akkorðinu.
vinnan er trés bíen en tekur á. ég er ekki enn búin að fullskilgreina kennarann í mér, og líklega er það margra ára verk. er við það að detta inn í starfsendarannsókn sem verður mér hollt, enda gott að hafa spegilinn uppi og skoða vinnusjálfið gagnrýnt og reglulega.
ég er illa inni í núinu í augnablikinu, hugurinn hamast í vorinu og veltir sér upp úr fermingum, blakmótum og kanödu. ég þrái vorið, en kvarta þó ekki undan góðum vetri það sem af er. komandi mánuðir eru bara svo spennandi?
minnstakrílið talar án afláts, og syngur án afláts. miðjan er að smella í þriggjaára? tíminn? jafnóskilgreindur og áframfljótandi og sjálfið. unglingurinn fatasjúkur. svo mjög að móðurgarmurinn tók þátt í nafnakeppni á einhverjum online katalóg og vann – svo nú getur skvísið farið bráðum á glamúr og valið flík að eigin vali, sér að kostnaðarlausu.
gunnlaugur. þurfum að vera duglegri að finna okkur innilegt vakúm í annríkinu. býð honum kannski á dörtí skrifstofudeit bráðum?
Siggaaaaa, SIIIIIIGGGAAAAA : o
ég er búin að blogga….. : )