heil og sæl, þið sem búið til sjávar og sveita og eigið kannski óvænt stefnumót við mig á orðapressunni. hér hefur ríkt þögn og var hún um margt guðsvelkomin og jafnvel þráð, enda hef ég rætt mörg ómerkileg málefnin hér síðan í árdaga.
en nú hafa mánuðurnir liðið á ljóshraða og sumarið bráðum óljós minning, eða þannig. bara korter í nýjan vinnuvetur og auðvitað er tilhlökkun, enda sitthvað nýtt sem mun rata á fjörur mínar á komandi misseri. ég ætla að kenna ögn fleira en enskuna, t.d. upplýsingatækni, og verður það án efa áhugavert.
en nú hef ég fésbókast undanfarið og allir því með mitt á hreinu. vonandi hangi ég hér endrum og eins og skemmti mér við að skrifa um ekkert og ekkert.
ég er annars að skoða sjálfið (nei?!) og mynda það því daglega. í upphafi póstsins er ég. sem sé, í dag. góðar stundir.

smússí smúss