leikskólakennarar eru yndislegasta fólk. ég dáist að því á hverjum degi þegar ég mæti með litla stelpuparið mitt í skólann og finn hlýtt viðmótið og notalegheitin. þetta er fólkið sem hjálpar okkur foreldrunum að undirbúa grunninn vel og vandlega, sá fræjum sem vonandi eiga eftir að vaxa og dafna og verða að einhverju frábæru. þetta er fólkið sem ég treysti fyrir lífi og velferð barna minna, og ég vil að það sé á mannsæmandi launum. nema hvað.

sjálf vann ég eitt sinn á leikskóla. það var skemmtilegur tími og konurnar sem unnu með mér voru og eru allar dýrmætar perlur. starf þeirra er erfitt og vanmetið, og allt að því sjálfgefið einhvern veginn. ég hef líka verið grunnskólakennari, og það er sannanlega líka vanmetin og erfið iðja. og illa launuð í þokkabót. nú er ég framhaldsskólakennari, áfram illa launuð auðvitað, en það bjargar einhverju að mér stendur til boða yfirvinna, sem og kennsla í dreifnámi eða fjarnámi (ég má því í raun teljast í 130% starfi).

leikskólakennarar standa í erfiðri kjarabaráttu um þessar mundir og samfélagið er þögult sem gröfin. sólin skín og fólk hangir glatt á útikaffihúsum og í sundlaugum bæjarins. sleikir brosandi ísinn, áhyggjulaust. það eru tólf dagar í boðað verkfall og ég er uggandi. uggandi yfir þessari þögn og þessu andvaraleysi, uggandi yfir því að bráðum hafi ég ekki lengur traustu og frábæru kennarana til að sýna stelpunum lífsins leiðir.

eins og ég sagði í upphafi þá eru leikskólakennarar besta fólkið. þetta er fjölskyldufagið, svo að segja, enda móðir mín og margar af hennar fjölmörgu systrum og mágkonum, og frænkum, leikskólakennarar. þetta eru konur sem leggja blóð, svita og tár í starf sitt og uppskera aðeins örfáar krónur fyrir og skort á virðingu fyrir faginu.

elsku mamma, sirrý, inga, helga, norðurbergskonur og holtakotskonur; leikskólafólk til sjávar og sveita; megi barátta ykkar bera ríkulegan ávöxt og fag ykkar loks öðlast þann sess sem það á sannarlega skilið.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s